Hér er að finna þriðja kafla dagbókar okkar Finns um lífið í Kaliforníu. Hann greinir frá fyrsta sumri okkar Finns í Kaliforníu ásamt hausti númer tvö. Það sem bar hæst af þetta sumar var að við fluttum af kampus til Mountain View, fengum heimsókn frá Íslandi, fórum til Lassen Volcanic National Park, Monterey, LA og San Francisco. Þegar haustaði urðum við bæði mjög upptekin, ég á fullu í skólanum og Finnur í vinnunni. Samt tókst okkur að gera lífið örlítið skemmtilegra með afmælisveislum (Kerri, Sarah, Erin og Augusto) og Halloween. Um þakkargjörðarhelgina hittum við pabba og Anthony í LA hjá Gunnhildi og Jóni sem var mjög gaman. Árinu lauk síðan með jólaferð til Íslands sem var alveg frábær.