Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Afmæli Finns 1
Föstudagur 27. júlí (HMG) - [Sett á vefinn laugardaginn 28. júlí]
Finnur á afmæli sunnudaginn 29. júlí og af því tilefni ákváðum við hjónakornin að slá upp íslendinga-afmælisveislu í gær, föstudag. Í átið mikla mættu Berglind og Stymir; Logi; Elsa, Þráinn og Kristborg; Guðrún, Snorri, Auður og Sif og Soffía, Ágúst, Kjartan, Stefán, Gunnar og Alma Hildur. Það voru sem sagt 12 fullorðnir og 6 krakkar allt í allt, sem hefði auðveldlega sprengt gömlu íbúðina - en allur fjöldinn komst auðveldlega fyrir í nýju híbýlunum. :)
Dagurinn byrjaði reyndar á því að ég kom snemma heim úr vinnunni og tók aðeins til (eins og tilheyrir víst) en síðan lagði ég til atlögu við maísinn. Hér er það nefnilega svo að maísinn er seldur fullklæddur í hýði og öllu saman - sem sagt ferskur! Strangt til tekið þá er flottara að grilla hann í hýðinu, en þegar ég sá hvað einn maís skildi eftir sig mikið sullumbull, þá ákvað ég að taka utan af þeim öllum og að þeir yrðu bara grillaði berrassaðir í þetta sinn! :)
Hrefna strípar maísinn
Til vinstri eru gjafir frá mér til Finns - í miðjunni er allur berháttaði maísinn -
og til hægri eru poki fullur af maíshýði!
Stuttu eftir þetta kom Finnur heim og setti grísinn inn í ofn sem þýddi að hann yrði tilbúinn um 20:30 um kvöldið. Okkur taldist til að við ættum "venjuleg sæti" fyrir 9 manns (5 í sófa og 4 eldhússtóla) og svo 4 svalastóla, en þar sem eldhúsborðið okkar rúmar 6 stóla þá var Finnur settur í að kaupa tvo stóla í viðbót. Svo óheppilega vildi til að búðin átti ekki tvo stóla eins og við vildum - en við fengum tvo svipaða stóla lánaða fram á mánudag í staðinn. Þar með vorum við komin með 11 "venjuleg sæti" og það skyldi duga! :)
Upp úr 18:30 tók fólkið að steyma inn og kom sér vel fyrir í sófunum eða í sólinni úti á svölum...
Guðrún, Logi, Snorri, Berglind og Stymir prufukeyra sófana
Elsa, Þráinn og Auður voru úti á svölum í sólinni og Kristborg og Sif
gerðu atlögu að snakkskálinni á meðan.
Finnur var svo sniðugur að kaupa Böggles - ahhh... æskuminningarnar!!
Fljótlega komu Soffía og Ágúst með alla krakkana nema Egil sem er víst á Íslandi (?)
Þegar sólin fór niður fyrir þak fóru karlmennirnir út á svalir á meðan
konurnar héldu "míní"-saumaklúbb inni í stofu með tali um börn og buru... ;)
Um níuleytið var aðalrétturinn tilbúinn og þá var bara að "dig in"!! :)
Afmælisbarnið með Styrmi snoðinkolli og Berglindi! :)
Eftir að hafa hlaupið um í garðinum þar til "landlady"-in kom og kvartaði undan hávaða,
þá færðum við sjónvarpið inn í svefnherbergi og þar voru krakkarnir og horfðu á
Disney-rásina langt fram eftir kvöldi! Hér eru: Kristborg, Sif, Stefán,
Gunnar, Kjartan og Alma Hildur.
Ágúst, Elsa, Soffía, Þráinn og Guðrún með matardiskana á hnjánum.
Á móti voru svo Logi, Auður, Hrefna Berglind og Stymir.
Æji hvað það er sætt að sitja svona í hring!! :)
Eftir að maturinn hafði fengið að sjatna smávegis var borinn fram ís í dunkum
og þá varð heldur betur hamagangur í öskjunni!!
Hér er Ágúst að gefa Ölmu Hildi ís að borða! Nammi namm! :)
Gunnar og Stefán létu ekki sitt eftir liggja í ísátinu...svo ekki sé minnst á Kristborgu
sem vildi gjarnan fá ís þrátt fyrir að vera orðin dauðþreytt!
Svo var komið að því að afmælisbarnið opnaði gjafirnar. Þegar upp var staðið
hafði hann fengið tvær bækur, mynd í ramma, átta vínglös, kassa af bjór,
tvo tölvuleiki og eina tölvumús. Hann þakkar kærlega fyrir sig! :)
(Stefán skildi reyndar ekkert hvað af hverju Finnur væri að fá _átta_ vínglös... "Eru þau ekki bara tvö?!?!" ;)
Svo fór nú fólk að týnast heim á leið enda krakkarnir orðnir þreyttir. Eitthvað dvaldi
barnlausa fólkið aðeins lengur en síðustu gestirnir kvöddu um eittleytið um nóttina.
Við þökkum fólki kærlega fyrir komuna og fyrir drenginn og vonumst til að sjá sem flesta áður en langt um líður! Því má bæta við að ég (Hrefna) ætla að halda saumaklúbb föstudaginn 17. ágúst - þannig að þið vitið þá af því!! :)