Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Jól í GreenBorder
Föstudagur 7. desember (FBÞ)  - [Sett á vefinn sunnudaginn 9. desember]

Ákveðið var í GreenBorder að halda upp á jólin, 7. desember, með því að setja upp jólaskreytingar og halda jólaboð fyrir starfmenn og fjárfesta (plús maka). Föstudagurinn fór því að mestu í að setja upp jólaskraut, raða borðum og undirbúa veisluna sem átti að vera um kvöldið.

Hópeflið þann daginn var því að brjóta heilann um hvar best væri að koma jólaskrautinu fyrir...

Prem og Anu horfa á Apurv máta ljósin á veggnum
(Prem er yfir okkur hugbúnaðarköllunum og Apurv er nýjasti meðlimur í þeim hópi)

Anu og Apurv ásamt Radhiku og Trudy

Trudy við skrifborðið sitt en hún gegnir hlutverki Office Manager sem er
eiginlega "mamman í fyrirtækinu", pantar flugfar, kaupir faxtæki, sér um
að það sé nóg til af gosdrykkjum í ísskápnum og nammi og snakki
í eldhúsinu. Trudy kom í staðinn fyrir Yoon sem var
látin fara þar sem hún stóð sig ekki nógu vel...

Forstjórinn hjálpar til við jólaskreytingarnar

"What !?!?" :)

Trudy, Anu og Radhika

Það varð fljótt ljóst að það þyrfti einhver hávaxinn að ganga í málið...
"Finnur!!!"

Og hér er jólatréð í fullum skrúða

Ákveðið var að allir starfmenn kæmu með eitthvað ætilegt til að hafa á hlaðborði í veislunni um kvöldið og komu menn með alls konar indverska rétti, plús brauð, salat, eftirrétti. Að sjálfsögðu bauð ég upp á glögg (sem ég kokkaði upp frá grunni) og piparkökur með og það lagðist afskaplega vel í mannskapinn. Ég hafði snemma um morguninn sett kanilstangir og negulnagla í rauðvín og kveikt undir (til að sjá hvort ekki væri í lagi með pottinn) og ilmurinn hafði því legið í loftinu frá því um morguninn. Sumir voru því að deyja úr forvitni yfir að vita hvernig glöggin bragðaðist (eða "glökk" eða "glugg" eins og flestir héldu að
ætti að bera það fram) :)...

Hlaðborð númer eitt, með taco skeljum (plús dip), indverskt sveppa-karrí,
og baquette brauð og salat á endanum.

Hlaðborð númer tvö, franskt "krvasant", meira taco,
indverskur réttur, ostar og brauðstangir

Hlaðborð númer þrjú (eftirréttirnir), mexíkóskar súkkulaðikökur,
piparkökur og smákökur með súkkulaði.

Vlad heldur tölu, óskaði öllum til hamingju með lang-besta árið í sögu fyrirtækisins! :)
Frá vinstri: Judy (kona Barry), Prem, Anu, Vlad, Heimir úr Teymi (sem var í heimsókn)
og vinstri hlutinn á David sem er yfir markaðsmálum í fyrirtækinu.

Kona Davids, Trudy, Apurv, Úlfar og Radhika.

Heimir, William, Anu og Sunil

Úlfar og Lotta

Eftir veisluna fórum við Úlfar á smíðaklúbbsfund þar sem setið var að snæðingi
á tælenska staðnum Sir Royal í Palo Alto og svo var rölt yfir á
Fanny & Alexander sem er eins konar bjórklúbbur
með lifandi tónlist. Heim var svo haldið um kl. 2.00 um nóttina.