Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Jól í Stanford
Miðvikudagur 6. desember (HMG)  - [Sett á vefinn sunnudaginn 9. desember]

Fimmtudaginn 7. desember var búið að plana að hafa jólaboð fyrir ISL og STARlab deildirnar innan rafmagnsverkfræðinnar.  (Ég, Kerri, Erin, Fayaz og fleiri tilheyrum STARlab sem er á 3. hæð en Deirdre og Augusto eru í ISL sem er á 2. hæð).  En að sjálfsögðu er ekki hægt að hafa jólaboð án jólaskreytinga þannig að við vorum fengin til að skutla saman einu jólatréi eða svo.  Merkilegt nokk þá hafðist þetta bara hjá okkur verkfræðingunum sem verður nú að teljast afrek því við erum sko engir véla- eða byggingarverkfræðingar heldur aumir rafmagnsverkfræðingar...  (eða á verkfræðísku: "við erum sko engir smurar eða naglar heldur aumir vírar"... :)

Deirdre, Erin, Augusto, Leif (skrifstofufélagi okkar Kerriar og Fayazar) og Fayaz
bretta upp á jólatrésgreinar og setja á sinn stað...

Fyrr en varði var tréið tilbúið!  Sko hvað það er fínt! :)

Hér má sjá verkefnalistann minn áður fyrir síðustu tvær vikurnar
á þessu skólaári.  Þegar þetta er skrifað þá er búið að krota yfir 8. des... gúlp!

Augusto tók sig til og skrifaði heilan tölvuleik á 2 vikum og eyddi afar litlum
tíma í svefn á þeim tíma.  Eftir að hafa loksins kynnt leikinn (og lent í 3. sæti í keppninni)
kom hann örmagna upp á skrifstofu til mín til að skutla mér heim en steinsofnaði á
gólfinu á meðan að ég var að ganga frá áður en við færum heim... zzzzz

Á fimmtudeginum var svo rosaflott jólaboð (þá voru sko ritarakonurnar búnar að skreyta allt hátt og lágt - þar á meðal strengt svona 20 jólaseríur um alla hæðina frá einni innstungu þó svo að það standi á kassanum að það megi bara setja fjórar seríur á eina innstungu!).  En því miður á ég engar myndir af þeirri samkomu því að Finnur stal myndavélinni þann daginn og gleymdi í þokkabót að taka myndir!!  Hápunktar veislunnar (þ.e.a.s. fyrir mig) var að ég söng í "kór" í fyrsta skipti á ævinni og það gekk ágætlega.  Nú hef ég sungið "Silent Night" og "Rudolph the Red-nosed Reindeer" á ensku!...  Svo vann ég $5 dollara gjafabréf í kaffisjoppuna á fyrstu hæðinni og dótahring fyrir að vita að "Fellowship of the Ring" kemur út 19. desember.  Þeir voru sko búnir að stilla upp fjórum prófessorum og hver þeirra var með spjald með spuringu á og með risahatt á höfði sem innihélt eitthvað dót.  Svarið við hverri spurningu var svo í hattinum hjá þeim prófessor.  Fyrsta spurningin var "Hvað hafði Prófessor Quirrel ekki en Buffy hefði getað notað?"  Svarið var "hvítlaukur" en ég gataði á þessari sökum Harry Potter vankunnáttu.  Spurning númer tvö var "Hvað vildi vondi galdrakarlinn í Harry Potter fá?".  Svarið við því var "Viskusteininn" og það fékk einhver krakki að svara því.  Næsta spurning var "Hvað vill ekki-Rowling galdramaðurinn eignast?".  Hér stóð fólk almennt á gati, en þegar leikstjórnandinn gaf það upp að myndin væri frumsýnd 19. desember var mín ekki lengi að rétta upp höndina og svara að hér væri um hinn hringinn eina að ræða...  :)  Fjórða spurningin var "Hvað vilja allir EE grad-nemar fá?".  Hér kom alveg flóð af svörum eins og "svefn", "fjármagn", "kvalasvör", "útskrifast" o.s.frv. en rétta svarið var "Lokaprófssvör" og í hattinum reyndust svör við lokaprófum síðasta árs... ;)

Hvað um það - undir lokin var svo súkkulaði happadrætti þar sem Sarah vann aðalvinninginn og vorum við öll voða glöð fyrir hennar hönd. :)