Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Thanksgiving í LA
21-25. nóvember 2001 (HMG)  - [Sett á vefinn sunnudaginn 25. nóvember]

Mánudaginn 19. nóvember flugu pabbi og Anthony frá Englandi til Los Angeles til að dvelja hjá Gunnhildi (systur pabba) og fjölskyldu hennar í tvær vikur.  Við vorum sérstaklega búin að tímasetja þetta, því sökum þakkargjörðarhátíðarinnar er fjögurra daga helgi frá fimmtudegi fram á sunnudag, sem þýddi að við Finnur gátum skruppið suður eftir og dvalið í nokkra daga í faðmi fjölskyldunnar.

Við lögðum af stað til LA klukkan 13:00 á miðvikudegi og keyrðum austur fyrir flóann og notuðum hraðbraut 580 til að komast á Interstate 5 sem er yfirleitt fljótlegasta leiðin til að komast niður eftir.  Að sjálfsögðu var hálft "Bay-Area" að reyna að komast í burtu og því lentum við í hroðalegum umferðahnút sem þýddi það að við vorum ekki mætt til Gunnhildar og Co. fyrr en klukkan 21:20.  Það munu vera um átta og hálfur tími í bíl - sem merkilegt nokk er ekki svo mikið lengra en það tekur að fljúga hingað frá Englandi!

Við vorum svo sein á ferðinni að við misstum af kvöldmatnum, en fórum þess í stað á skyndibitastað og átum svo hnetur með fjölskyldunni þar til við skriðum í rúmið...

Gunnar pabbi og Gunnhildur systir hans hafa það gott í stofunni.  Takið
eftir pistasíu krukkunni...

(Hreinn) Orri hnetubani

Gunnhildur og prinsessan hún Helena í nýja Stanford bolnum sínum.

Anthony (litli bróðir minn) var eitthvað ósáttur við skipulagið á
skóhillunni og gerði tilraunir með "new and improved" skipulag...

... en fékk bara tiltal frá Jóni að launum! :)

Dagur 2 - Fimmtudagur - Thanksgiving Day

Í ljós kom að tölvugripir heimilisins voru í afar slæmu ástandi og því skal það
engan undra að Finnur dvaldi svo gott sem alla helgina í bílskúrnum að laga þær!
Hér er Orri með Finni við "nýju" PC vélina og Ezra vinur Orra heldur á tölvulokinu.

Jón að reyna að auka minnið í "lapp-toppnum"

Á meðan var ungviðið úti við og lék sér.  Eitthvað voru sumir
æstir í að fá vélina...

Faðir, sonur og frænka ásamt plastbarni.

Jón mega-ánægður!!  - Búið að gera við allar tölvunar!


Svo var komið kvöld og tíma á að borða þakkargjörðarmat.

Gunnhildur við kalkúninn ógurlega!  Hann var alveg ljúffengur!

Orri, Gunnhildur, Helena, Finnur, Jón, Gunnar og Anthony sitja við hlaðið borðið.

Gunnhildur sá um að skera kalknúinn.  Maturinn reyndist alveg frábær!!
Takk fyrir okkur Gunnhildur! :)

Anthony, Gunnar pabbi og Orri við matarborðið.

Að sjálfsögðu borðuðu allir yfir sig og afleiðingarnar má sjá hér á eftir...

Allir steinsofnuðu!!  Hér er Finnur í Lazy-boy-inum...

...og hér liggur Jón með Helenu á maganum.  ZZZZzzzz...

Föstudagur - Dagur 3 - "Post-Thanksgiving-Sales"

Það tók pabba bara örfáa daga að byrja að laga það sem laga
þurfti í húsinu.  Hérna er hann að laga bakdyrahurðina sem var
eitthvað óþétt...

Á meðan opnaði ég "papajað" sem Prof. Fraser-Smith gaf okkur fyrir ferðina
í því skyni að auka á "tropical"-fílinginn hjá okkur.  Eftir að ég var búin að losa mig
við steinana kom í ljós sæmilega bragðgóður ávöxtur en ekki eitthvað sem ég
myndi éta á hverjum degi samt.

Pabbi æstur að komast á útsölurnar!
Hálf bandaríska þjóðin fer í búðir föstudaginn eftir Thanksgiving því þá
byrja útsölurnar.  Við urðum að sjálfsögðu að fylgja hefðinni!

Það góða við að fara í búðarferðir er ísinn...!!

Ekki var nú mikið keypt og við fórum fljótlega heim.  Þar tók ég þessa
hálf-sjálfsmynd (það eru sko sjálfsmyndir með fleira fólki en bara mér)
af mér og Anthony.  Erum við ekki lík? :)

Kvöldmatur.  Það var þarna sem Anthony lét út úr sér þessa gullnu setningu:
 (lesist með afar miklum enskum hreim) "I am sorry, but I'm afraid I don't like pasta..."!!!

En í staðinn fór hann í kitluleik við Finn

Orri hélt sig mestan tímann í bílskúrnum enda núna orðinn stoltur tölvueigandi...

Nei sko - ég!  Að borða!!

Dagur 4 - Laugardagur - Hellirigning

Á leiðinni út... þau í verslunarferð og við Finnur til Völu og Ólivers í Pasadena.

Hjá Völu og Óliver hittum við hana Árdísi með-bloggara.  Þar fengum við
eðal-hádegismat að hætti Ólivers og nýbakað brauð að hætti Árdísar.  Takk fyrir það! :)

En á meðan var algjör haugarigning úti!!  Úff!  Greyið pálmatréin!
Það skal þó geta þess að það var í raun ekki mikill vindur.  
Pálmatrén eru bara svoddan aumingjar!

Þegar heim til Gunnhildar var komið voru þau systkin komin
á fullt í pönnukökubakstur með báðum pönnunum hennar.
Ahh... pönnsur!!  Nammi namm!

Um kvöldið opnaði Gunnhildur svo freyðivín frá áramótunum 2000 sem var bara fínt! :)
Hér erum við Hrefna, Gunnar (pabbi Hrefnu) og Finnur í sófanum.

Og hér er Orri með Gunnhildi mömmu sinni.

Dagur 5 - Sunnudagur - Tími til að fara heim, sniff, sniff.

Við feðginin

Anthony verður 4 ára 2. mars 2002.

Og svo ein lítil lokamynd af okkur hjónakornunum.

Við lögðum af stað til baka klukkan 11:00 um morguninn og keyrðum upp eftir hraðbraut 101 til tilbreytingar.  Á leiðinni stoppuðum við í klukkutíma í Solvang sem er "Danish Village" og þar fengum við danskan hádegismat (og meiri að segja þunnt Kron hveitikex sem mér fannst alveg toppurinn á tilverunni!) og svo fjárfestum við í Haribo saltlakkrís og "turkish pebber".  Nú er bara að reyna nammið á útlendingana! :)  

Við runnum heim í hlað klukkan 18:30 þannig að við vorum núna sjö og hálfan tíma á leiðinni en þar af fór klukkutími í Solvang þannig að við vorum í raun bara sex og hálfan tíma að keyra þetta sem er mjög vel sloppið.  Samkvæmt míluteljaranum í bílnum keyrðum við 390 mílur og það tók 13 gallon (einn tank) af bensíni.  Þar með vitum við núna að bílinn kemst um 30 mílur á 1 galloni (reyndar ekki sérlega sparlega ekið). :)
Restin af kvöldinu fór svo í að horfa á upptekna sjónvarpsþætti því á morgun byrjar lokaspretturinn fyrir jólafríið sem nálgast óðfluga.  Við erum meiri að segja búin að fá Flugleiða-miðana í pósti! :)