Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Trúlofunarmatur
Laugardagur 17. nóvember (HMG) - [Sett á vefinn þriðjudaginn 20. október]
Í tilefni af því að Taly og Tom eru búin að trúlofa sig þá ákváðum við að bjóða þeim í kvöldverð. Það er hins vegar hægara sagt en gert því Tom á heima í allt öðru fylki og hefur bara komið hingað einu sinni áður eða svo. Planið var sem sagt að hann myndi koma á föstudeginum og við fá þau bæði í mat á laugardeginum, en svo tafðist víst að fá hringinn (sem var í minnkun) þannig að hann ákvað að koma á laugardeginum í staðinn - og missti þar með af matnum! En hvað um það, við ákváðum að halda ótrauðar áfram og halda samt matarboð. Kerri kom með tvö lasagne (uppskrift mömmu hennar) og brauð, Deirdre og Matt komu með brauðgerðarvélargert brauð, ég opnaði salatplastpoka úr Albertsson og Taly sjálf kom með súkkulaðiköku og ís frá Violu sem komst ekki.
Fólk í stofunni!
Kerri hugar að lasagne-nu í ofninum. Það var eitt með kjöti
og eitt grænmetis og bæði reyndust ljúffeng! :)
Deirdre og Kerri í eldhúsinu... voða húsmóðurslegar - nema hvað að ég
á víst að vera húsmóðirin á þessu heimili! hehe...
Hér er svo nammigottið komið á borðið og svo var bara að fá sér! :)
Finnur þarf að læra að fá sér grænmeti líka! ;)
(grænmetið var reyndar sett á diskinn eftir myndina) :)
Hér er dæmi um vel blandaðan disk!
Mamma Kerri vill fá nærmyndir af matnum - versógúd! :)
Við hjónakornin með matinn í kjöltunni - við verðum að fara að
fjárfesta í 12 manna matarborði!! ;)
Heiðursgestur kvöldins, hún Taly!
Deirdre og Matt gera atlögu að matnum
Það gerðu Tim og Erin líka!
Svo opnuðum við flösku af "bubbly". Finnur sýnir listir sínar!
Svo var hellt í glas fyrir Taly! Skál!! :)
Um seint og síðir komu Augusto og Nick, en Nick er vinur Augusto frá
Nýju Mexíkó og hann er hér í vikuheimsókn.
Þekkir einhver þessa þarna til vinstri?!?! ;)
CONGRATZ TALY AND TOM!! :)
Eftir matinn fórum við á Harry Potter sem var bara mjög fín! :)