Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Kókoshnetan
Miðvikudagur 14. nóvember (FBÞ) - [Sett á vefinn þriðjudaginn 20. nóvember]
Í dag freistaðist ég til þess að kaupa kókoshnetu í stórmarkaðinum, eftir að hafa heyrt Hrefnu lýsa aðförunum í skólanum þegar prófessor Fraiser-Smith kom með kókoshnetu handa þeim - og reyndar líka eftir að hafa horft á Úlfar borða kókoshnetu í hádeginu á einum Tælenskum veitingastað í nágrenni við vinnuna...
Það er ekki hlaupið að því að ná góðgætinu úr kókoshnetunni, get ég sagt ykkur en leyndardómurinn felst í því að gera gat á hana þar sem "augun" eru en það eru dökkir blettir á öðrum enda hennar sem eru aðeins mjúkari en restin. Þegar það er búið má hella safanum úr og þá er hægt að opna hana án þess að sulla út um allt! :)
Þegar hér er komið sögu var búið að gera þrjú göt með hamri og nagla...
og þá er bara að ná mjólkinni úr án þess að allt fari út um allt...
Mmmm.... kókoshnetumjólk....
Sko, fullt glas af kókoshnetumjólk! :)
Og þá er bara að ná kjötinu úr hnetunni!
Náum í stórvirku vinnuvélarnar...
Sko, þetta hafðist að lokum!
:)
Kókoshnetan berskjölduð...
Hrefna horfði vantrúuð á allan tíman...
:)
Kókoshnetan var svo sem ágæt þó að Hrefna hafi ekki verið
jafn hrifin (reyndar nýbúin að borða íspinna)! :)