Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Míní Thanksgiving
Sunnudagur 11. nóvember (HMG)  - [Sett á vefinn þriðjudaginn 20. nóvember]

Við fórum út að borða með Matt, Deirdre og mömmu Matt miðvikudaginn 7. nóvember.  Sem afleiðingu af því var okkur boðið ásamt fleira fólki í "míní-thanksgiving" þar sem mamma Matt vildi endilega elda kalkún fyrir drenginn sinn því hann og Deirdre ætla ekki til hennar um alvöru "thanksgiving" sem er núna 22. nóvember.

Við á Taj Mahal.  Finnur, Hrefna, Joan Robinson, Matt Robinson og Deirdre O'Brien

Sunnudagurinn rann upp bjartur og fagur (eins og allir aðrir dagar hérna - eða svona næstum því) og við fórum til Saratoga (bær þar sem Matt býr) um 5 leytið.

Joan að huga að matnum

Deirdre ræðir við Catherine og Finnur og Matt skiptast á tölvusögum

Catherine, Rebecca (sem er herbergisfélagi Deirdre), Joan ofurmamma, Deirdre og Hrefna

Móðir og sonur.  En sætt!

Vinnufélagar Matt sem komu líka.  Þau (eins og við) fengu kalkúnasúpu að skilnaðargjöf.

Svo í lokin er mynd af arninum hans Matt sem er voða fallegur þrátt fyrir
að vera bara gasarinn...