Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Pool
Laugardagur 10. nóvember (HMG) - [Sett á vefinn fimmtudaginn 15. nóvember]
Til að gera nú eitthvað meira skemmtilegt á þessari skemmtilegustu helgi til langs tíma þá fórum við með Augusto og David Hooper út að borða á mexíkóskan stað og síðan að spila pool.
Finnur og David á Fiesta Del Mar.
Hrefna og Augusto hinum megin við borðið.
Í ljós kom að Finnur hefur spilað pool nokkrum sinnum áður
og grunar mig Jóhann (hennar Kötu) sé orsakavaldur...
Hann átti amk miklu fleiri góð skot en ég - en merkilegt nokk þá tókst mér
að pota nokkrum kúlum niður líka! :)
Skytturnar þrjár - David, Augusto og Finnur.
Finnur og Augusto voru saman í liði
og ég spilaði með David. Lokatölur kvöldsins voru 4-2 fyrir A&F.
Það gengur bara betur næst! :)