Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Kráarbrölt í MV
Föstudagur 9. nóvember (HMG) - [Sett á vefinn fimmtudaginn 15. október]
Þar sem að það var "CoHo" í gær* þá var ákveðið að halda CoHo í Mountain View á föstudeginum. Sendir voru út lestartímar svo fólk gæti komist á milli staða og klukkan 19:30 hittumst við nokkur á St. Stephens Green og fengum okkur að borða og síðan "smá" áfengi.
* Til upprifjunar þá er "CoHo" stytting á Coffee House á Campus þar sem Hrefna og samnemendur hittast yfir ölkrús á föstudögum.
Shahriyar og Fayaz skoða matseðilinn
Logi var duglegur á bjórkönnunni.
Næstum allir með lokuð augun!! TJ (kærasti Söru) og Sarah ásamt Finnsaparti!
Sumir eru skrítnari en aðrir...
Við (Hrefna og Deirdre) vorum kvenfólk kvöldsins því Kerri kom og fór snemma
með John því hún ætlaði að læra um kvöldið. Já, á föstudegi.
(Sumir kunna enga mannasiði!! ;)
Hrefna og Deidre í góðu geimi. Ég held að hendurnar mínar vilji fá myndavélina
aftur. Reyndar var myndavélin alveg á síðasta snúningi því ég hafði hana óvart
í gangi allan daginn og því var hún svo gott sem batteríslaus.
Allir brosa núna! :)
Kvöldið leið hratt og var hið fjörugasta! Við stormuðum út á dansgólfið og létum eins og nördar einir geta. Eitthvað eftir miðnætti var nóg komið og við röltum með Deirdre heim til hennar og svo fengum við far með Tim heim til okkar (mjög stutt að fara). Logi hjólaði víst heim til sín en hann man víst ekkert allt of vel eftir þeirri salíbunu.... hehe. ;) Það er líka orðið nokkuð ljóst að Mountain View CoHo er sko miklu skemmtilegra en Stanford CoHo... :)