Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Halloween
Miðvikudagur 31. október (HMG)  - [Sett á vefinn miðvikudaginn 31. október]

Í dag var hrekkjarvaka í Bandaríkjunum og víðar (en ekki á Íslandi samt).  Við ætluðum nú fyrirfram ekkert að dressa okkur neitt upp en í gærkvöldi skaut Augusto upp kollinum með hjúkkubúning upp á arminn og vildi fá lánaðan brjóstahaldara frá Hrefnu(!!!).  Þar með var stíflan brostin og Hrefna skutlaðist út í Walmart og fann smá fata- og málningardót fyrir daginn í dag enda ekki hægt að láta Augusto fá alla athyglina einn! :)  Þess fyrir utan ætluðu einhverjir vinnufélagar Finns að mæta í búning þannig að Finnur gat ekki verið út undan...

Í ljós kom að það voru afar fáir Stanfordnemar í búning en hjá Greenborder mætti Vlad forstjóri sem Drakúla greifi, úpps nei ég meina Dabija greifi, Úlfar tæknistjóri var útfararstjóri og Barry (sem er frekar lágvaxinn) mætti með Yoda grímu!! :)   

Yours truly voru...
Harry Potter og...

... barna og unglingastjarnan ég

Hugmyndin var að vera REM lagði "All the way to Reno" þar sem viðlagið hljómar "You're gonna be a staaaaar!" en það kom upp smá geðklofi í mér þar sem ég eyddi deginum sem bæði "næstum fræg" og "rosa fræg" en það kom ekki mikið að sök... :)

Ég var meiri að segja í háhæluðum og allt!
(uuhh.. eða til svona 14:30 þegar ég hreinlega meikaði ekki hælana lengur!)

Svo var haldið í skóla og vinnu og þegar í Packard var komið fór ég í tíma og hitti Ellu sem hló sig máttlausa. Ég fékk meiri að segja bros frá Prófessor Inan þegar hann sá mig sitjandi á fremsta bekk.  Eftir tímann fór ég aftur í Packard og þar beið hjúkrunarfræðingur dagsins.. hún Nurse Betty Augustina!!

Nurse Betty Augustina með snyrtiveski "starlettsins"
Það má nú ekki gleyma sér minnimáttar! ;)

Stjarnan sýnir Nurse BA hvernig bera skal sig að við förðun...

Augustina gerði síðan heiðarlega tilraun til að mála sig...

"Á! á! á! Ég stakk mig í augað!"

Við sáum fljótlega að þetta myndi ekki enda vel þannig að Deirdre sá um kinnalitinn...

Að lokum náðist að smyrja flestu á án varanlegs skaða:
augnskugganum, maskaranum, varalitnum, glimmerinu...

Sarah sat og horfði á okkur athafnafólkið...

Æjá... ekki má gleyma að það var ókeypis nammi í hádegismat! :)

Við Nurse Betty Augustina fórum svo saman í tíma þar sem okkur tókst að kreista bros úr Prófessor Goldsmith og samnemendum okkar en samt fékk ég engar beiðnir um eiginhandaráritanir sem mér fannst svoldið súrt...

Svona "venjuleg" mynd af mér og Augustinu eftir tíma.  
Hér vantar "trademark" munnstútinn minn... sem er sem betur fer á næstu mynd!

Augustina himinlifandi yfir að fá að sitja fyrir með hinni stórfrægu mér! :)

En það er erfitt að vera stjarna á uppleið því maður þarf að gera svo mörg heimadæmi!
(úpps... gleymdi stútnum aftur!!)

Augustina hafði það betra því hún þurfti ekki að gera nein heimadæmi... bara fara í nokkra tíma í viðbót.  Að degi loknum kom hún hins vegar aftur inn á skrifstofu þar sem hún gerði sitt allra allra besta til að tæla Fayaz í lokkandi dans... en það gekk eitthvað illa... ;)

Augustina með Fayaz sem vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið í allan dag!!


Svo fórum við tvö og Augustina út að borða á Red Pepper, sem er mexikóskur staður í nágrenni Stanford...

Þar fékk Augustina loksins einhvern til að leika við,
enda ekki á hverjum degi sem maður getur læknað Harry Potter!! :)