Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Heimboð D&M
Laugardagur 27. október (FBÞ)  - [Sett á vefinn miðvikudaginn 31. október]

Á laugardagskvöldið buðu Deirdre og Matt okkur í mat heim til Matts sem býr í Saratoga, ekki mjög langt frá okkur.

Deirdre heimtaði að við tækjum mynd sem sönnunargögn fyrir því að hún
hafi staðið fyrir eldamennskunni... Hún ku víst vera lítið fyrir að elda og var
látin hræra í pönnunni meðan Matt var úti að grilla steikurnar... :)

Matt með restina af matnum, ofnbakaðar kartöflur með
bráðnum osti ofan á. Nautasteikurnar (sem sjást ekki)
voru þegar hér var komið sögu nýkomnar á matarborðið...

Við sátum svo yfir matarborðinu og spjölluðum fram eftir kvöldi og færðum
okkur svo um set og settumst fyrir framan arininn og spjölluðum um heima og geima.
(Þess má til gamans geta að arininn er gas-arinn, sem er annað en
við eigum að venjast heima á Íslandi).

Síðan þegar klukkan var farin að nálgast miðnætti var kominn tími til að halda heim á leið og afþökkuðum við boð þeirra um að gista í gestaherberginu þar sem Hrefna þurfti að mæta eldsnemma í skólann morguninn eftir og var þar að auki ekki með linsuboxið með sér...