Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
CoHo
Föstudagur 26. október (HMG)  - [Sett á vefinn sunnudaginn 28. október]

Merkilegt nokk (fyrir svona félagslega fatlað fólk eins og rafmagnsverkfræðinga) þá er kaffihúsaferðin á föstudögum ekki dottin upp fyrir.  Það hittast alltaf nokkara hræður og fá sér bjórglas til að slaka á eftir vikuna og í þetta sinn voru mætt Augusto, Deirdre, Hrefna, Logi og Shahriyar.  Finnur kom um síðir til að ná í mig því við ætluðum að hitta Gísla og Bobby og eyða með þeim kvöldstund.

Augusto og Logi við fjöruga veggskeytingu

Olnboginn á Augusto, Logi og Deirdre ásamt tómri bjórkönnu.

Við fáum okkur oft litlar pretzel með bjórnum enda hefur salt og bjór alltaf farið
vel saman.  Hér eru þær því miður allar búnar! :(

Deirdre var hin brosmildasta

Logi var hinn bjórmildasti

Augusto vildi fá myndavélina
(Hann er algjörlega takkaóður) :)

og ég er víst bara plain-skrítin... ;)