Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Blogg
Fimmtudagur 25. október (HMG)  - [Sett á vefinn sunnudaginn 28. október]

Nú er meiningin að halda úti lítilli míní dagbók með engum myndum en tíðari uppfærslum undir því ljóðræna nafni "Dagbók #2".  Hér má sjá það sem rataði inn fyrir og á fimmtudeginum 25. okt... Kannski er rétt að byrja neðst á síðunni þar sem þetta er í öfugri tímaröð... :)

Fimmtudagur 25. október

Dagbókarstúss
Nú er ég búin að vera með móral í viku yfir hvað við höfum eytt litlum tíma í dagbókaruppfærslur þannig að dagurinn í dag hefur verið dagbókar-blogger-dagur. Já, ég setti upp FTP-þjón á vélinni minni og er búin að dunda mér við að endursegja undanfarna daga sem hafa verið óvenju tíðindamiklir en ekki mjög myndríkir. Ég vona að einhver hafi gaman að... þið megið meiri að segja skrifa um ánægju ykkar í gestabókinni! :)



Mánudagur 22. október

"You put the lime in the coconut"...
Hann Prof. Anthony Fraser-Smith á það til að koma með alls konar góðgæti til okkar Kerriar (því við erum í svo miklu uppáhaldi hjá honum) og þegar ég kom úr rafsegulfræðitíma í dag hafði hann skilið kókóshnetu eftir á borðinu hennar Kerriar. Kerri stóð upp og sýndi mér kókóshnetuna og benti mér sérstaklega á "augun" þar sem maður á að bora til að ná safanum úr henni. Hún rétti mér þvínæst kókóshnetuna og ég grýtti henni samstundis í gólfið á skrifstofunni okkar. Ekki spyrja mig af hverju...

Örstuttu síðar hafði myndast sæmilega stór pollur umhverfis kókóshnetuna enda hafði hún ekki staðist áreksturinn við gólfið. Hvað um það... við gripum bolla og helltum restinni af safanum sem var ennþá inni í hnetunni í hann. Síðan greip ég svitastorkinn hjólastuttermabol sem ég hafði gleymt að fara með heim og þurrkaði upp það sem ég gat af teppinu. Við átum síðan kókóshnetukjöt í hádegismat og það var bara alveg ágætt. :)




Sunnudagur 21. október

Kvalir og flutningar
Fór og hitti "kvalagrúppuna" mína klukkan 10 um morguninn - en ég á víst að vera að læra fyrir kvölina sem er í janúar en það gengur nú eitthvað hægt enn sem komið er þökk sé eilífum heimadæmum og þvíumlíku. Svo reyndi ég að læra eitthvað en ég var svo þreytt eftir laugardaginn að ég skreið heim og lagðist í bælið klukkan 16-18... Þá hringdi Finnur og bað mig um að sækja sig í EV - en hann var þar í BBQ hjá Berglindi og Styrmi eftir að hafa hjálpað þeim við að flytja aftur inn á kampus. Þess má geta að þetta er í 3. skiptið á 4 mánuðum sem þau flytja!



Laugardagur 20. október

Geðveikir tónleikar
Loksins loksins rann upp laugardagurinn 20. október!!! Í dag skyldi nefnilega fara á "Bridge School Benefit Concert" sem merkilegt nokk er ekki til styrktar þeim sem lentu í 11. september 2001 heldur til styrktar skóla fyrir fötluð börn. Það vill nefnilega svo til að Neil nokkur Young og kona hans eiga tvo fatlaða syni sem báðir gengu í Bridge School - og þar sem Neil er ótrúlega kúl gæi þá tók hann upp á því fyrir 15 árum að halda góðgerðartónleika fyrir skólann. Í fyrstu voru þetta litlir tónleikar en nú er svo komið að þeir standa í tvo daga og flytendur eru yfirleitt af betri endanum...

Ég (Hrefna) ætti kannski að byrja á því að viðurkenna að ég er "ákafur" REM aðdáandi og hef verið undanfarin 10 ár... Nú er svo komið að ég á allar plöturnar þeirra - en aldrei hélt ég að ég ætti eftir að komast á tónleika með þeim... Ég var því ekkert að pæla mikið í því þegar ég las á vefnum "REM spilar á Bridge School tónleikunum í ár"... þangað til ég las lengra og sá "í Shoreline Amphitheater í Mountain View, Kaliforníu!!" sem er einmitt þar sem við eigum heima!! :) Það var því nokkuð ljóst að ég ÆTLAÐI á þessa tónleika - en það tókst ekki betur en svo að ég endaði á því að kaupa miða af öðrum í gegnum netið ... á litlar 16þús ísl. krónur stykkið... ahemm... en eins og mamma segir alltaf... "Maður lifir bara einu sinni"!!!! :) Svo fórum við heldur aldrei til Hawaii í haust eins og mig langaði þannig að þetta voru bara sárabætur... hehe


Hvað um það... ég ætla ekki að fara út í smáatriði um hvað gerðist á tónleikunum... eina sem ég vil segja er að þetta voru alveg frábærir tónleikar sem stóðu frá 3 um daginn til miðnættis!! :) Jill Sobule var fyndin - Ben Harper var full alvörugefinn en vinsæll hjá öllum pot-reykjurunum í kringum okkur - Billy Idol var algjör hetja (hoppaði og skoppaði um sviðið fertugur karlinn) - Tracy Chapman er með ÓTRÚLEGA fallega söngrödd - REM ... ah REM... ég söng með allan tímann - Dave Matthews var víst stressaður en stóð sig vel og allir elskuðu hann - Pearl Jam eru ekki lengur reiðir en alveg fantagóðir þrátt fyrir það - og Neil Young og Crazy Horse dró fólkið aftur til jarðar með vel völdum lögum. Tónleikarnir enduðu á því að Neil Young og Co. spiluðu (sungu ekki) Imagine eftir John Lennon og allur áhorfendaskarinn söng með textanum sem var varpað á stóran skjá. Á meðan stóðu allir tónlistarmenn dagsins á sviðinu og sungu með en ekki í hátalarakerfið. Það var nokkuð massíft sérstaklega eftir það sem er búið að vera í gangi undanfarið.


Allt í allt frábær upplifun! :)


Hér eru síðan nokkrir linkar á aðrar umfjallanir um tónleikana:
Hyperrust - Murmurs.com - E!online -



Föstudagur 19. október

Vefsíðuflutningarnir miklu
Ekkert mikið gerðist svo sem... var búin með heimadæmin daginn áður (sem er afar óvenjulegt) þannig að dagurinn fór í að færa vefsíðuna mína af Stanford heimasvæðinu yfir á tölvuna mína í skólanum. Heimasíðan mín er sem sagt núna á http://radio-blonde.stanford.edu og dagbókin er komin undir http://radio-blonde.stanford.edu/dagbok. Gamlir linkar eiga samt að duga á gömlu síðuna... vona ég! Þetta voru nauðsynlegir flutningar því ég var komin 10MB yfir minn 50MB kvóta hjá Stanford og því ljóst að þetta myndi ekki ganga mikið lengur. Ég setti því upp Apache vefþjón upp á vélinni minni og ég verð bara að segja að það gekk alveg ótrúlega vel!! Vei fyrir Apache!! :)

Saumó hjá Berglindi
Hún Berglind hélt saumaklúbb um kvöldið sem var algjört "hit"... Frábær matur að venju og mikið spjallað og spekúlerað. Mest kom mér þó á óvart hvað ég var glöð að hitta fólk sem ég þurfti ekki að tyggja nafnið mitt ofan í ... Venjulega gengur þetta svona:


Ég: "Hi! My name is Hrefna"...
Úgglendingur: "Krebbna?"...
Ég: "No,... Rebbna"...
Úgglendingur: "Shrebbna?"...
Ég: "uhh.. whatever.. Just call me Blondie!"


En sem sagt - í klúbbinn komu þjár nýjar Au-pair og svo vinkona Kristínar Frigeirsdóttur þannig að það var nóg af fólki! :)
Takk fyrir klúbbinn Berglind! :)

Dagbók #2 (Fimmtudagur 25. október)

Ahhh... mikið var!! Eftir mikið jaml japl fuður og fuml þá er hérna mætt dagbók #2 (!!!) sem á að vera svona aukadagbók þar til að við náum að hysja upp um okkur buxurnar með dagbók #1 sem er með allar myndirnar og er voða skipulögð og svona. Ekki veit ég hvað þessi dagbók verður aktív.. en það verður bara að koma í ljós... amk getur hún ekki orðið mikið van-aktívari en blogg-dagbók Hollu og Óla.. .hehe... ;)

Mitt fyrsta verk verður að púnkta niður atburði liðinnar viku... á meðan að ég man þá... og svo reyni ég kannski að ganga almennilega frá þessum bloggi... eins og breyta dagaheitum og gera þetta "næs".