Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Saumaklúbbur
Föstudagur 19. október (HMG) - [Sett á vefinn sunnudaginn. 28. október]
Hún Berglind bauðst til að halda saumaklúbb föstudaginn 19. október þar sem hún og Styrmir voru að fara að flytja aftur á kampus tveimur dögum síðar. Ég lét nú ekki segja mér tvisvar að það væri eðal kræsingar að íslenskum hætti í boði og mætti galvösk síðasta partý-ið á Rock Street.
Rakel sker jarðaberjakökuna á meðan Jónína og Guðrún ræðast við.
Berglind húsfrú að stússast í bakgrunni.
Ragnhildur (systir Guðrúnar), Kristín, Svava María (að mig minnir)
vinkona Kristínar og Berglind.
"Skytturnar þrjár" - alveg nýjar au-perur!
Elsa og Rakel í góðum gír
Guðrún að lýsa einhverju - guð má vita hverju!! ;)
Jónína reynir að ræða við Soffíu á meðan mynd er smellt af myndatökusmellaranum
Soffía frá undarlegu sjónarhorni - hún á að eiga í byrjun desember.
Guðrún og Elsa við leyfarnar - Frábær matur Berglind! :)
Ojojoj... allir að fara...
Berglind kveður stóðið. Við þökkum kærlega fyrir okkur. :)
Við sjáumst hressar eftir mánuð og þá hjá Unni! :)