Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
The Big Dish 2
Föstudagur 5. október (FBÞ) - [Sett á vefinn sunnudaginn 14. október]
Kerri er "CA" eða "Community Assistant" í ár sem þýðir að hún fær öruggt húsnæði á kampus gegn því að skipuleggja alls konar viðburði fyrir fólkið sem býr nálægt henni. Föstudaginn 5. október fékk hún Ivan Linscott (sem ég vinn fyrir) til að leiða skoðunarferð upp að The Big Dish og sýna hann að utan sem að innan. Þegar á hólminn var komið kom í ljós að Kerri sjálf gat ekki mætt þannig að ég fór í staðinn fyrir hana og tók myndir. Hópurinn var ekki stór en af mörgum sviðum - aldrei þessu vant var ég ekki umkringd rafmagnsverkfræðingum sem var bara ágæt tilbreyting! :)
Hér er séð yfir hópinn á leiðinni upp að disknum
Leiðin liggur fram hjá Lake Lagunita sem er skraufþurrt á þessum árstíma.
Vatnið er fyllt á vorin fyrir "siglingarnámskeið" með dælum en á sumrin er
slökkt á dælunum og þá hverfur vatnið!
Linscott fræðir fólkið. Hoover turn í baksýn.
Yup! The Big Dish!
Linscott við stjórntækin...brrumm... brummm...
Hér er eitt stykki tíðnigreinir (spectrum-analyser). Tíðnin eykst til hægri.
Við kíktum á Kasseópíu A sem eru leyfar af sprengistjörnu (súpernóvu).
Efri línan á skjánum (sterkara merkið) er þegar horft er beint á Kasseópíu og
þar má sjá ísogslínur (lesist: í-sog-s-línur = absorption lines) vetnis, hliðraðar í tíðni
vegna Doppler-áhrifa. Neðri línan horfir rétt fram hjá Kasseópíu og þá sjást
"emission"línur vetnis. Af þessu má draga þá ályktun að á milli okkar og
Kasseópíu séu þrjú (sjá efri línuna) risastór vetnisský eða með öðrum orðum að
á milli okkar og Kasseópíu eru þrír armar af vetrarbrautinni ("the galaxy").
Svo var klifrað upp á útsýnispallinn og teknar nokkrar myndir.
Fyrir neðan diskinn er þetta hús sem einu sinni hýsti rafstöðina fyrir
diskinn. Mér er tjáð að þegar geim-áætlunin var upp á sitt besta á sjötta og sjöunda
áratugnum þá notaði diskurinn 1MW af afli. Búrfellsstöð býr til 150MW.
Hrefna með nýrri stelpu í rafmagnsverkfræðinni sem ég man ekki hvað heitir!
Diskurinn er 46m í þvermál...
Linscott segir sögu flugvélaljósanna. Þar var nefnilega þannig að diskurinn var
geymdur í "uppréttri" stöðu þannig að bífræfnir skóladrengir gerðu sér leik að
því að klifra upp bakhlið disksins og stela rauðu ljósunum efst uppi. Helmingunartími
þeirra mun hafa verið 6 vikur. Síðan tóku menn upp á því að geyma diskinn hálf-hallandi
aftur-á-bak og eftir það hefur ekki þurft skipta nærri því eins oft um perur.
Svo var rölt niður eftir aftur á þá tók ég þessa mynd af Stanford sem eru
öll húsin með rauðu þökunum. Stóri hvíti klumpurinn lengst til hægri er ein af
blokkunum í Escondido Village þar sem við bjuggum í fyrra.