Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
San Francisco
Föstudagur 21. september (HMG)  - [Sett á vefinn laugardaginn 22. september]

Dagur 5 í sumarfrí Hrefnu - og sá síðasti.

Á miðvikudaginn síðasta kom litli bróðir Deirdre hingað til Kaliforníu frá Írlandi.  Reyndar leit lengi vel út fyrir að hann myndir ekki koma - stóra systir var alvarlega með í maganum yfir að eitthvað myndi koma fyrir í ljósi þess sem gerðist á austurströndinni - en allt gekk vel fyrir sig og Gearoid (borið fram "Garod" - en samt ekki) mætti nokkurn veginn á réttum tíma.  Og til að vera nú góður gestgjafi ákvað Deirdre að fara með honum til San Francisco - og ég fékk að fljóta með.  Minnugir lesendur muna kannski að við Finnur höfum hingað til ekki farið mikið til San Fran... eiginlega ekki neitt (allavega ekki í þeim tilgangi að skoða borgina sem túristar)!!  Já... við erum algjörir lúserar... ;)

Gear og Deirdre hittu mig í lestinni en það tekur rúmlega
klukkustund að fara frá San Antonio til SF með henni.

Hér erum við komin til San Fran.  Við rákumst á þessa frekar stóru járnhrúgu
sem verður einhvern tímann að voða fínni byggingu.

Eins og tilheyrir þá lá leið okkar fyrst til Union Square - en þar var allt krökt af
jarðýtum og völturum þannig að við komumst ekki nær en þetta.

Ein búðin hafði hent út öllum gínunum sínum og hafði bara fánann og
"We grieve" sem "útstillingu"...

Eins og á við um svo margar stórborgir - þá er "Kínahverfi" í San Francisco.
Hér er inngangurinn á því eftir Grant götu.

Ég að pósa við innganginn... eins gott að ljónið bíti ekkI! ;)

Það tók ekki langan tíma að villast inn í fyrstu túristabúðina
þar sem Gear keypti púðaver handa einni systur sinni
(systkinin eru 6 allt í allt, 4 stelpur og 2 strákar)

Séð yfir part af Grant götu og Kínahverfinu.

Þegar út úr Kínahverfinu kemur blasir við Transamerica turninn.
Hann er ekki svona skakkur heldur er það ég sem er skökk!

Á mótum Broadway og Columbus er þessi skemmtilega málaða bygging...

Úr Kínahverfinu fórum við í ítalska hverfið (löbbuðum eftir Columbus)
og þar fengum við okkur samlokur í hádegisverð.  Þær voru voða góðar! :)

Að sjálfsögðu þurftum við að klifra upp að hlykkjótta partinum á Lombard götu,
en það er víst algjörlega nauðsynlegt að keyra niður þessa götu einu sinni á ævinni.

En útsýnið í hina áttina - þ.e. niður Lombard - er ekki síðri! :)
(Já, þetta er brött brekka - og önnur eins hinum megin!!)

Þarna rétt hjá var síðan gott útsýni yfir á Alcatraz eyjuna margfrægu
Þangað er hægt að fara með túrisabátum og í "audio-tour" en það þarf
yfirleitt að bóka það með 2 daga fyrirvara.

Litið yfir San Fran til hægri miðað við Alcatraz myndina.  Turninn til hægri
heitir "Coit Tower".

Þegar við löbbuðum niður á höfn og fórum að nálgast "Pier 39" og "Fisherman's Wharf"
þá sáum við merki þess að vera komin í "Túristaland" - eins og þennan hestvagn!!

San Fran er umburðalyndasta borg í heimi gagnvart samkynhneigðum,
og við höfnina var einn skrautlegur sem bauðst til að sitja fyrir á myndum fyrir penge.

Þarna var líka smá dót fyrir krakkana...

Á Pier 39 var þessi skemmtikraftur - sem bað fólk mikið um að gefa sér penge
því að þetta væri hans lifibrauð...

Við bryggju 39 hafa hundruðir sæljóna tekið upp búsetu
ferðamönnum til mikillar gleði og yndisauka. :)

Séð yfir höfnina sem reyndar nær meðfram allri strandlengjunni sem
tilheyrir San Francisco.

Alcatraz í baksýn.  Það var frekar mikill vindur þarna en sem betur fer nokkuð hlýtt. :)

Hér má sjá sæljónin frá hinni hliðinni - og alla túristaþvöguna á bryggju 39.

Eitt frægasta "einkenni" San Fran eru kapalbílarnir ("Cable cars") sem eru
dregnir áfram á stálvír sem liggur í götunni.

Svo komum við við á Ghirardelli Square þar sem Ghirardelli-súkkulaðistórveldið hóf göngu sína...

... og stoppuðum til að kaupa okkur ís.  Þegar þarna var komið
vorum við búin að ganga vel og lengi og gott að fá sér smá hvíld.

Svo tók við gangan í átt að Golden Gate brúnni.  Fyrst var um að gera að
spóka sig á stöndinni - með seglskip og Alcatraz í baksýn.

Þarna erum við komin örlítð áleiðis.  Þeir sem sjá vel geta mögulega greint
brúna í baksýn...

Á leiðinni gengum við fram hjá bátastæði... þar sem er "permit parking"!!!  
Maður þarf sem sagt að vera með leyfi til að leggja!  En kannski að þetta eigi við
bílastæðin sem eru þarna meðfram...?!...

Nálægt Golden Gate brúnni er furðulegt fyrirbæri... rómverskar rústir
sem kallast "Palace of Fine Arts"!! Nema hvað að hér voru aldrei Rómverjar -
heldur er þetta mannvirki frá alþjóðlegri sýningu sem var haldin 1915 og
þótti of flott til að eyðileggja eftir að sýningunni lauk.

Hér er sem sagt um að ræða súlur sem halda engu þaki uppi
og hringlaga "hof" sem er vissulega fallegt - en furðulegt um leið...

Svo villtumst við inn í Exploratorium sem er svona vísindasafn...
fullkomið fyrir svona fiktandi fólk eins og okkur!

Við inni í "kaleidoscope"-inni sem er lokaður "spegla-þríhyrningur"

Þarna var líka þessi fína innrauða myndavél þar sem við komumst að því að Deirdre
var kalt á höndunum! ;)

En eftir ánægjulega veru í Exploratorium héldum við sem leið lá í áttina að brúnni... en
þegar hér var komið við sögu var farið að kólna nokkuð og vindurinn blés inn af Kyrrahafinu.

Á leiðinni voru þessi furðulegu hús - einhver stjórnstöð fyrir náttúruvernd
eða þvíumlíkt.

Útsýnið til baka var flott - við vorum búin að labba alla leiðina frá háhýsunum!

Eins og okkur grunaði þá var Golden Gate brúin lokuð fyrir gangandi
vegfarendum vegna sprengjuhættu og því komumst við ekki nær en þetta.
Fyrir aftan okkur er löggubíll þar sem í var brjálaður hundur sem gelti og gelti
þegar Deirdre spurði hvaða leið við ættum að fara til að ná strætó til baka...

Okkur var bent á að labba upp á við því þar væri strætó.  Hér má því sjá
leiðina sem við löbbuðum meðfram stöndinni.

Á einhvern óskiljanlegan hátt römbuðum við fram á strætóstoppistöð þar sem
stætó kom á þeirri sömu mínútu og keyrði okkur aftur í mannabyggðir.
Þar tókum við annan strætó (nr. 30 - þennan sem hér sést) til að komast
aftur á CalTrain-stöðina.

Þegar þarna var komið var klukkan orðin 18:00 og við búin að vera labbandi
í næstum sjö tíma... og við vorum orðin nokkuð lúin! :)

Svo náðum við lestinni til baka og vorum komin aftur til Mountain View klukkan 20:12.
Þar skildu leiðir þar sem þau systkinin ætluðu að hitta Matt kærasta Deirdre, en
Finnur beið mín á lestarstöðinni og við fórum út að borða á indverska
veitingastaðnum Taj Mahal í miðbænum.

Eftir matinn fórum við og leigðum The Mexican með Juliu Roberts og Brad Pitt - og eins og gengur og gerist þá sofnaði Finnur í sófanum yfir myndinni! ;)