Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Palo Alto
Miðvikudagur 19. september (HMG) - [Sett á vefinn laugardaginn 22. september]
Dagur þrjú í sumarfríi Hrefnu. Dagurinn byrjaði svo sem rólega - en eftir hádegi hélt ég niður í miðbæ Palo Alto til að skoða mig þar um. Palo Alto er næsti bær við Stanford háskóla og er einn ríkasti bærinn á svæðinu. Ég hef reyndar gengið þar um áður en alltaf í hálfgerðum flýti og yfirleitt með það að markmiði að kaupa mér "gelato"-ís...
Ég tók stætó númer 22 frá Rengstorff til Palo Alto.
Hér er þetta fína Harry Potter auglýsingaskilti... ég vona bara að myndin verði góð!
Blaðakassarnir voru frekar tómlegir þennan dag.
Hér er ég komin á University Avenue - sem liggur beint inn í hjarta Stanford,
þ.e. ef maður keyrir í hina áttina.
Á University Avenue er fullt af veitingastöðum - og áberandi
hvað það er oft hátt til lofts.
Svo rambaði ég inn í þessa ágætu búð... Z Gallerí held ég að hún heiti.
Hér er betri yfirlitsmynd... ahh.. fullt af drasli!
Eftir að hafa gengið nokkuð um datt ég inn í Borders og keypti mér Lord of the Rings í þriðja skiptið - en núna allar bækurnar í einni bók. Já, ég er algjör... Keypti mér líka diskinn með Sigur Rós - hef reyndar ekki gefið mér tíma til að hlusta mikið á hann en held að hann sé mjög fínn...
Eftir að ég kom út úr Borders gekk ég framhjá hárgreiðslustofu, og þar sem
ég hef ekki farið í klippingu síðan við fórum síðast heim í byrjun apríl -
þá lét ég til leiðast og lét klippa mig. Reyndar sagðist ég vera að "safna"
þannig að það sést enginn munur - en mér leið betur á sálinni... ;)
Svo rakst ég á þessa byggingu sem mér fannst vera spes!
Komin heim... hefði átt að taka mynd um leið og ég kom heim því hárið var
allt blásið og fínt... en þarna er það orðið frekar dáið... ;)
Og að aftan... jamm... ég er ljóshærð.
Finnur lá í sófanum að venju og horfði á CNN...
En svo var farið í háttinn - Hér eru táslurnar hans Finnsa míns
sem var farinn að sofa á undan mér! :)
Daginn eftir gerði ég ekki handtak - lá mest upp í rúmi og las eða bara svaf! Enda eins gott því á föstudaginn fór ég til San Francisco - en það er saga fyrir aðra síðu...