Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Mountain View
Mánudagur 17. september (HMG)  - [Sett á vefinn fimmtudaginn 20. september]

Ég var búin að ákveða það fyrir nokkrum vikum að ég ætlaði að taka mér frí í þessari viku.  Ætlunin var (og er) að slaka aðeins á áður en skólinn byrjar aftur á miðvikudaginn í næstu viku.  Hins vegar var nokkuð ljóst að Finnur myndi ekki taka sér frí þar sem hann vill nota sína 10 frídaga til að fara heim um jólin.  Það var því svo að á mánudaginn byrjaði mitt sumarfrí - og ég vissi ekkert hvað ég átti af mér að gera!!  

Mitt fyrsta verk var að fara yfir slatta af vídeóspólum sem við höfum tekið upp á og sjá hvað væri eiginlega á þeim.  Sem afleiðingu af því horfði ég á meiripartinn af "The mirror has two faces" og "Eraser" áður en ég gafst upp á sjónvarpinu.   Því næst komst ég að því að Finnur hafði hertekið myndavélina þannig að ég tók mig til og hjólaði þangað sem hann er núna að vinna.  Það tók litlar 20 mínútur - sem er 10 mínútum minna en það tekur mig að hjóla í skólann... þannig að nú er ég komin með góða ástæðu til að svipta hann bílnum!! :)  En þar sem hjólatúrinn minn er eina æfingin sem ég fæ þá ætla ég að bíða aðeins með það! ;)

Hvað um það.  Eftir að hafa heilsað upp á Finn og samverkamenn hans þá hjólaði ég sem leið lá niður í miðbæ Mountain View (sem er bærinn sem við búum í) í þeim erindagjörðum að kíkja í bókabúðir.  Reyndar er það svo að miðbærinn liggur nokkurn veginn miðja vegu milli þar sem við búum og þar sem Finnur vinnur þannig að þetta var ekkert úr leið.

Miðbær Mountain View er ein gata sem heitir Castro sem var svo gott sem auð
á þessum mánudagseftirmiðdegi.

Það var samt áberandi að á flestum rúðum mátti sjá bandarískan fánann en svo
virtist sem eitthvert dagblaðið hefði tekið sig til og prentað hann á miðopnunni.

Það er yfirleitt ekki mikið um heimilislaust fólk á okkar slóðum en endrum
og eins rekst maður á það.  Hér er ein sofandi með dótið sitt.

Það er allt morandi í asískum búðum í miðbænum svo og austurlenskum
og indverskum veitingastöðum.  Þar má líka finna tvo írska bari. :)

Hér eru bókabúðirnar -  Books Inc. er þarna á horninu með flagg í hálfa stöng
og Bookbuyers er við hliðina.

Books Inc. er ágætis nýmóðins bókabúð með kaffihúsi á 2. hæð

Af hverju eru bókabúðarstelpur svona oft með "tígó"?

Það er mikið búið að minnast á "The Greatest Generation" (sem barðist
við Hitler) í sjónvarpinu undanfarið í sambandi við hina nýju kynslóð sem
nú þarf að berjast á móti hryðjuverkum.

Í Books Inc. festi ég kaup á "Me talk pretty one day" sem reyndist hin ágætasta skemmtun. :)

Svo fór ég inn í Bookbuyers sem er búð sem kaupir notaðar bækur
og minnir á troðfullt gamalt bókasafn.  Þar mátti finna ýmislegt áhugavert...

... eins og þessa líka fínu klappstýrubók!

Þeir eru með alls konar flokka...

... um allt milli himins og jarðar sem á við okkur mannfólkið.

Þessi var tekin sérstaklega fyrir Halla - Star Trek fan númer eitt!  Hér voru
tvær troðfullar hillur af öllum mögulegum og ómögulegum Star Trek bókum!

Hér festi ég kaup á "Pebble in the sky" eftir Isaac Asimov fyrir litla $2 sem mér fannst vera góð kaup. :)

Og svo rakst ég á þetta tré sem er ennþá með jólaljósin á sér. :)

Á leiðinni heim á leið rakst ég á Deirdre á einum ljósunum.  Við röbbuðum saman í smá stund og þá keyrði Finnur fram hjá okkur - einnig á leiðinni heim!!  Um kvöldið ákváðum við hjónin að gera nú eitthvað af viti og fórum á Rush Hour 2... sem var óttaleg vitleysa! :)