Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Helgin
Sunnudagur 16. september (FBÞ & HMG) - [Sett á vefinn sunnudaginn 16. september]
Og þar með er helginni lokið, ekki mjög tíðindamikilli helgi hjá okkur - enda við ekki í miklu stuði til að gera mikið eftir ógnartíðindin í byrjun vikunnar og flutningana í lok vikunnar. Við vorum því bara heima þessa helgina, ef frá er talin smá grillveisla á föstudeginum og laugardeginum sem Finnur eyddi niðri í vinnu.
Hrefna notaði tækifærið um helgina og kláraði að prjóna peysu sem
hún er ekki búin að ákveða hver á að fá. Líklegast verður hún nú
reyndar send fyrst til Hrefnu ömmu í þvott því amma hefur einstakt
lag á því að gera svona nýjar (og hálfsjúskaðar) prjónaflíkur fínar.
Á miðvikudaginn dró Kerri Hrefnu í hand-og fótsnyrtingu þar sem Kerri
var á leiðinni í samkvæmi á fimmtudeginum. Hrefna lét til leiðast enda
búin að horfa á hryðjuverkaútsendinguna frá CNN allan daginn og var komin
með alveg nóg.
Hér er betra sjónarhorn. Mikið eigum við sætan farsíma...
Menn hafa annars almennt reynt að láta eins og árásin hafi ekki haft nein áhrif og keppst við að halda öllu gangandi svo að sem minnstur skaði verði af árásinni...
Hér í lokin fylgir svo smá sýnishorn af myndunum sem hafa tröllriðið bandarísku sjónvarpi undanfarna viku... Sjónvarpsdagskráin hefur verið algjörlega undirlögð af fréttum frá hryðjuverkunum, rannsókn málsins og björgunaraðgerðum. Meira að segja auglýsingarnar fengu að víkja sem er mjög óvenjulegt í bandarísku sjónvarpi... Nú er bara að vita hvað gerist á mánudaginn þegar hlutabréfamarkaðarnir opna og um miðja vikuna þegar frestur Talibana-stjórnarinnar til að afhenda höfuðpaurinn rennur út...
Myndir af hruninu hafa verið sýndar aftur og aftur
Nágrenni World Trade Center
Myndir af björgunaraðgerðum
Fleiri myndir af björgunaraðgerðum
Annars er fréttaflutningurinn almennt búinn að vera ótrúlegur - endalausar umræður og viðtöl og myndbirtingar - og oftar en ekki hefur maður tárast. Það eina sem okkur Evrópubúana finnst vanta er að draga meiri athygli að því að þetta sé hörmungaratburður fyrir allan heiminn, ekki bara fyrir Bandaríkin, þó svo að Bandaríkin hafi óneitanlega borið langlangmestan skaðann. Þeir hafa eitthvað minnst á fleiri hundrað manns frá Evrópuþjóðunum og Rússlandi sem létu lífið í árásinni - en það er yfirleitt gert í sömu mund og þegar rætt er um þá samstöðu sem Bandaríkjamenn þurfa að byggja upp gagnvart hryðjuverkum í heiminum. En það hvað þeir einblína á Bandaríkin er mjög skiljanlegt í ljósi þess að þeir þurfa að byggja upp reiði landans til að geta farið í stríð - því ekki þýðir að fara í stríð nema Stebbi Styði Stríð (ein treður Stebbi stríð... ) :)
Einnig hefur mikið verið hamrað á því í fréttunum að hryðjuverkamennirnir séu ekki venjulegir múslimar heldur öfgamenn og bókstafstrúarmenn sem samræmast ekki trúarskoðunum Íslams, en svo virðist sem almenningur hafi í einhverjum tilfellum látið reiði sína bitna á verslunum sem reknar eru af múslimum og að múslimar þori ekki að senda börn sín í skólann af ótta við hermdaraðgerðir.
Þeir segja það líka, Indverjarnir niðri í vinnu, að það sé ekki mikill útlitsmunur á Afganistum, Indverjum og Pakistönum og að þeir hafi fundið fyrir meiri athygli ókunnugra þegar þeir ganga um göturnar hér um slóðir.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig málin þróast á næstu dögum og vikum og mánuðum og árum...