Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Flutningar
Föstudagur 14. september (FBÞ) - [Sett á vefinn sunnudaginn 16. september]
Í lok vikunnar fengum við (í GreenBorder) að vita að samningar hefðu náðst um nýtt leiguhúsnæði í Mountain View (við mörk Sunnyvale) sem vill svo til að er í nokkurra mínútna aksturs-fjarlægð frá staðnum þar sem við Hrefna búum. Því var ákveðið að flytja starfsemina á föstudeginum í nýja húsnæðið og setja allt upp þannig að hægt væri að byrja á fullu á mánudegi. Húsnæðið er á jarðhæð í skrifstofu-húsnæði og er framlenging á leigusamningi hjá öðru fyrirtæki - og nær til 10 mánaða, sem þýðir að annað hvort þurfum við að finna okkur nýtt húsnæði þá eða að við tökum yfir leigusamninginn hjá fyrirtækinu sem framlengdi leigusamninginn, sem er öllu vænlegri kostur fyrir okkur.
Við leigðum því U-Haul sendiferðabíl til að ferja draslið sem við erum búin að safna að okkur frá því í maí (þar meðtalið allt draslið sem við erum með í geymslu frá Troba, fyrirtæki sem fór að mestu leyti á hausinn :) og við keyptum fullt af drasli frá...
Mæting var kl. 9:00 í geymsluplássið þar sem megnið af
draslinu okkar er geymt. Hér sjást þrír forritarar af fjórum (Sunil,
Anurag og Asit) mæta á staðinn og Yoon (frá Kóreu) sem gegnir hlutverki Office
Admin (og heldur hér fyrir andlitið - vill ekki láta taka af sér myndir).
Forstjórinn (Vlad - í gula bolnum) stjórnaði aðgerðum eins og herforingi...
Yoon, Barry (gæðastjórinn) og Radhika fylgjast með aðförunum...
Draslið var svo flutt á nýja staðinn og síðan héldu allir nema ég og Barry á gamla staðinn - enda áttum við að
mæta á fund með tæknimönnum til að ræða tengingar og öryggismál fyrir nýja staðinn.
Eitthvað létu tæknimennirnir bíða eftir sér þannig að Barry
notaði tækifærið og slappaði af í "nýju" sófunum sem eru
búnir að vera í geymslu frá því að við eignuðumst þá...
Eftir fundinn vorum við kallaðir í hádegismat en þá hafði fyrirtækið (Mobilygen) sem við höfum verið að leigja af ákveðið að
bjóða starfsmönnum beggja fyrirtækja í mat og við Barry brunuðum á staðinn á blæjubílnum hans Úlfars.
Eftir að hafa étið nægju sína var hafist handa við að hlaða bíllinn öðru sinni...
Og draslið var allt flutt yfir á nýja staðinn, þar sem Úlfar tók myndir á stafrænu
kvikmyndatökuvélina sem hann er með í láni frá Snorra, vini sínum.
Horft yfir skrifstofurnar - Úlfar tekur myndir á meðan Vlad leggur á
ráðin hvar eigi að koma fólkinu fyrir
Svona til marks um það hvað allt er frumstætt ennþá
þá er markaðsfulltrúinn Radhika að negla
nagla í veginn með skrúfjárni. :)
Radhika spurði hvort að allir Íslendingar væru jafn fanatískir og við Úlfar
hvað varðar ljósmyndun/kvikmyndun á öllu því sem fram fer í daglega lífinu... :)
Horft frá innganginum (skrifstofurnar til vinstri)
Barry er vinstra megin og Vlad hægra megin
Skrifstofa Barry (gæðastjórans) og tilvonandi skrifstofa Yakkn (sem er
tröll að vexti og er frá Japan, og mun byrja bráðum). Þetta herbergi mun
einnig hýsa netþjónana.
Draslinu var hrúgað inn á gólf og svo var sendiferðabílnum skilað og
þá tók við mikið verkefni að koma öllu á réttan stað og setja upp allt netið.
Svo þarf að dytta að smáatriðum á borð við lykla
(sem reyndar eru í formi aðgangsspjalda)
Inngangurinn og sófinn þægilegi...
Stund milli stríða...
Anurag, Radhika og Finnur í sófanum eftir
að búið var að koma mesta draslinu fyrir
Forgangsatriði var að koma þróunarumhverfinu upp svo að hægt væri
að hefjast handa á mánudeginum af fullum krafti.
Og að lokum var búið að setja mest allt draslið upp og hægt að tengjast
netinu og notuðu margir tækifærið og athuguðu póstinn sinn eftir
erfiðan vinnudag...
Mestu erfiðis-vinnunni var lokið á föstudeginum og svo mættum við Barry á laugardeginum til að koma upp nettengingum, og þá sérstaklega þráðlausu neti fyrir ferðavélarnar og svo kíktum við á gamla staðinn og fluttum netþjónana yfir á nýja staðinn og þar með var flutningunum nánast lokið.
Nú er bara að sjá hvort allt virkar á mánudaginn þegar menn mæta í vinnuna... :)