Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Hörmungar
Þriðjudagur 11. september (HMG) - [Sett á vefinn þriðjudaginn 11. september]
First - our condolences go out to those who've lost loved ones on this
horrendous day. One can only hope this never ever happens again.
Hvað getur maður sagt? Þetta er nú búinn að vera ljóti dagurinn...
Eyrún (elsta systir Finns) hringdi í okkur frá Íslandi klukkan sjö í morgun
og sagði okkur að kveikja á sjónvarpinu. Eftir það vorum við límd við
sjónvarpið og horfðum á turnana tvo falla... aftur og aftur...
Finnur fór samt í vinnuna á nokkurn veginn réttum tíma og þar var
fólk mjög slegið en reyndi samt að halda lífinu áfram eins og
venjulega.
Ég fór í vinnuna/skólann rétt fyrir hádegi þar sem ég hitti Kerri sem var
mjög mjög slegin og afskaplega döpur yfir þessu, hún hafði fylgst með
þessu frá upphafi eða síðan klukkan 6 í morgun. Það finnst öllum eins
og við séum nýbúin að sjá Hollywood bíómynd nema hvað þetta er að
gerast í alvörunni (hverjir muna ekki eftir endinum á Fight Club?).
Mér varð lítið úr verki í vinnunni. Eftir að hafa skoðað fréttasíðurnar
í einhverja klukkutíma ákvað ég að tiltekt á skrifborðinu yrði verk
dagsins. Svo rölti ég út í Stanford bókabúðina en hún reyndist lokuð
vegna atburða dagsins - og reyndar voru rosalega fáir á ferli á kampus.
Ég reyndi líka að fara í kirkjuna en hún var lokuð vegna "private sermon"
og ekki hægt að kveikja á kertum. Fyrr um daginn hafði hins vegar verið
kertavaka en ég missti sem sagt af henni.
Svo hjóluðum við Deirdre heim þar sem við veltum þessu fyrir okkur fram
og aftur (hvernig er hægt að brjóta hefndarvítahring o.s.frv.) en komumst
ekki að neinni niðurstöðu. Síðan sátum við fyrir framan sjónvarpið og horfðum
á þessar óhuganlegu myndir þar til Matt kom og náði í hana um níuleytið.
Þetta er allt frekar óhugnalegt. Það skal samt tekið fram að allt er með
kyrrum kjörum hjá okkur - við búum í klukkustundar fjarlægð frá San
Francisco þannig að lokanir þar höfðu engin áhrif á okkur.
Nú sitjum við og horfum á sjónvarpið - á nýjar myndir af fyrstu flugvélinni
að stingast inn í annan turninn og hörmungarnar á jörðu niðri.
En sem sagt - það er allt í lagi með okkur en því miður verður ekki það
sama sagt um fjöldan allan af öðru fólki og þeirra fjölskyldum.