Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Deirdre í DMV
Föstudagur 7. september (HMG) - [Sett á vefinn sunndaginn 9. september]
Það kom upp úr dúrnum einhvern daginn fyrir mörgum mánuðum síðan að Deirdre hefur aldrei tekið ökupróf... sem er svo sem allt í lagi... en ekki alveg í takt við "independent women" þemað sem ræður ríkjum meðal kvenna í rafmagnsverkfræði (eða eitthvað... ég er algjörlega að steypa hérna! ;) Hvað um það, svo flutti hún af kampus í byrjun júní (eins og við) og missti þá út úr sér að hún þyrfti nú að fara að taka ökupróf. Síðan eru liðnir margir mánuðir og því var það svo á miðvikudaginn síðasta að Kerri ákvað að panta tíma handa henni í skriflegt ökupróf á meðan ég hafði upp á ökuprófabunkanum sem safnast hefur saman síðustu árin (maður fær nefnilega að eiga prófið sitt hvort sem maður nær eða fellur). En sem sagt, það var pantaður tími fyrir Deirdre á föstudegi klukkan 10:20.
Hún var eitthvað nervös að hafa mikinn mannfjölda nærri sér (lesist: hún vildi ekki að ég tæki myndir) þannig að Kerri og ég vorum búnar að samþykkja að hitta hana bara eftir prófið. Svo vildi hins vegar til að ég og Finnur sváfum yfir okkur um morguninn þannig að ég var ennþá heima klukkan 10 og við eigum heima í 10 mínútna göngufjarlægð frá DMV. Það var þá sem ég fattaði að ég ætti nú eiginlega að skreppa í DMV sjálf því að við höfðum aldrei fengið sendan skráningarlímmiðann fyrir bílinn. Ég rölti því út í DMV og hitti þar fyrir Deirdre (quelle surprise!) og við tökum okkur stöðu í tveimur mismunandi röðum. Svo skemmtilega vildi til að við fengum afgreiðslu á nákvæmlega sama tíma - hún var skráð í bílprófið og ég fékk skráningarlímmiða - enda hafði hinn verið sendur í byrjun og júní og því "löglega" týndur í pósti (það var einmitt þá sem við fluttum).
Ég var því í góðum gír til að "myndfesta" Deirdre að taka skriflega ökuprófið sitt...
Deirdre lagar hárið fyrir myndatökuna
Við það að fá prófið í hendurnar
Deirdre að taka skriflega prófið... dúmmdúmm ... dúmmdúmm..
(þetta á sko að vera hjartsláttur... ;)
Deirdre náði prófinu með glans - var bara með eina villu af 6 leyfilegum - og fékk því úthlutað svokölluðu "permit" sem þýðir að hún má keyra í bíl undir eftirliti ökumanns sem er 18 ára eða eldri og með gilt Kaliforníu ökuskírteini. Svo þarf hún að taka verklega prófið innan árs til að fá alvöru ökuskírteini sjálf.
Deirdre fyrir utan DMV og komin með "permit".
Hér er hún að reyna að ná í Kerri...
Ekki tókst að ná í Kerri til að fara í CostCo þar sem hún komst ekki frá Stanford. Við Deirdre gengum því heim til mín og fengum okkur hádegisverð áður en við tókum stætó til Stanford. Það tók heila klukkustund að komast með strætó alla leið að Packard byggingunni í Stanford og þá var klukkan orðin 14:00. Sem sagt - dagurinn rúmlega hálfnaður og ekkert búið að gera í vinnunni - skamm skamm! Klukkan fimm var nokkuð ljóst að það yrði ekki meira gert þennan dag og við fórum heim aftur!
Um kvöldið kom svo Logi í ediets kvöldmat og við leigðum "15 mínútur" með Robert DeNiro og fleirum. Hún var fín! :)