Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
MV Arts & wine
Sunnudagur 9. september (FBÞ) - [Sett á vefinn sunnudaginn 9. september]
Á sunnudeginum ákváðum við að fara á Arts & Wine festival (sjá vefsíðu hátíðarinnar) sem staðsett var í miðbæ Mountain View. Eitthvað lítið fór fyrir vínhlutanum og nær að kalla þetta frekar Art's festival heldur en Wine festival þar sem þarna var um að ræða góðan slatta af farandsölumönnum með tjöld sem seldu listmuni en aðeins tveir-þrír aðilar seldu bjór/vín á staðnum, á uppsprengdu verði að sjálfsögðu. :)
Mikið af listmunum var til sölu af öllu stærðum og gerðum.
Allt frá litlum glerstyttum til risastórra bronsstyttna, frá litríkum
thai-dye-bolum (í: regnbogabolir?) til höfuðfata af ýmsum gerðum.
Greinilegt var hvaða áhugamál þessi sölumaður hefur...
... að búa til fljúgandi farartæki úr gos/bjórdósum
Bjórinn var að sjálfsögðu smakkaður, sérstakur Festival bjór
að evrópskum hætti.
Hrefna og Deirdre fyrir framan einn básinn
Finnur og Deirdre. Flest fötin voru annað hvort í "hippastíl" eða "ömmustíl".
Á svæðinu var hljómsveit og þegar við komum að áttust við tveir liðsmenn hennar
í trumbuslag.
Grashausarnir minntu á Álmholtið... :)
Og þar sem að þessi setning gæti misskilist þá skal tekið fram
að hér er ekki átt við íbúa Álmholtsins heldur grashausinn sem við
áttum meðan við bjuggum þar hjá fjölskyldu Finns. :)
Við héldum svo heim á leið dauðþreytt í fótunum eftir alla gönguna og steinsváfum bæði í tvo tíma sitt í hvorum sófanum... :)