Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Nýtt rúm
Laugardagur 8. september (FBÞ) - [Sett á vefinn sunndaginn 9. september]
Á laugardeginum fórum við Hrefna upp í Berkeley til að kíkja á rúm sem Rakel, íslenskur sálfræðinemi í Berkeley, auglýsti til sölu. Hún var tiltölulega nýflutt inn í íbúð sem innihélt húsgögn og þurfti því að losna við rúmið sitt. Rúmið var staðsett þar sem hún bjó áður, og þurftu fyrrum herbergisfélagar hennar að losa svefnherbergið sem rúmið var í og því lá svolítið á að losna við það. Við gerðum okkur því ferð upp eftir með Deirdre, sem vildi hitta írska vinkonu sína sem bjó í nágrenninu.
Hrefna fyrir utan íbúðina þar sem Rakel bjó áður
Rúmið mátað
Rúmið reyndist vera hið fínasta rúm, ársgamalt. Þegar hún keypti
það upphaflega átti það að kosta $1100 en hún fékk það lækkað
sökum útlitsgalla niður í $900. Við fengum það svo á sérstöku tilboðsverði
$450, special price - only for you my Icelandic friend... :)
Deirdre og Rakel fylgjast spenntar með mátuninni, Rakel með gulu síðurnar í
höndunum til að reyna að finna fyrirtæki sem leigir út sendiferðabíla og er
opið um helgar (sem reyndist ekki vera auðvelt).
Eina fyrirtækið sem svaraði var U-Haul og þeir ráðlögðu okkur að hringja aftur kl. 16:00 þannig
að íbúarnir (ástralskt par/hjón) létu okkur fá lykil til að komast inn í íbúðina þar sem þau voru á leiðinni
út og myndu sennilega ekki koma heim aftur í bráð. Við tókum við lyklinum með þökkum og
ákváðum að hitta Catherine, vinkonu Deirdre, og fara með henni í hádegismat.
Deirdre og Catherine.
Catherine er í doktorsnámi í byggingarverkfræði við Berkeley og var
skólasystir Deirdre í heimabæ þeirra beggja, Cork.
Þar sem við höfðum ennþá heilmikinn tíma að drepa þá ákváðum við að fara í smá útsýnisferð um Berkeley, keyrðum um hæðirnar og skoðuðum útsýnið.
Finnur, Deirdre og Cathrine horfa á útsýnið
Ekki var hægt að taka mynd af útsýninu þar sem sólin skein beint á móti þannig að
það varð að láta hliðarmynd nægja... :)
Síðan var haldið í lítinn almenningsgarð þar sem finna má villtar
skjaldbökur í litlu stöðuvatni. Þær voru þó ekki á því að láta taka mynd af sér
og létu sig hverfa um leið og mannfólkið nálgaðist.
Fjöldinn allur af sílum var í vatninu sem voru öllu ófeimnari en þeim mun
erfiðara að taka mynd af þeim... :)
Catherine og Deirdre horfa yfir vatnið
Við hringdum svo aftur í U-Haul fyrirtækið og fengum þau svör að við ættum að hringja aftur klukkan 17:00 til að panta bíl... Þannig að biðin eftir flutningabílnum lengdist enn...
Því næst var haldið heim til Catherine þar sem hún var með
litla gjöf handa Deirdre og Matt, handbók um gönguleiðir í Kaliforníu
Í stað þess að hringja aftur kl. 17:00 þá ákváðum við bara að mæta á staðinn og freista þess að leigja U-Haul sendiferðabíl... og það vildi svo skemmtilega til að maðurinn á undan okkur í röðinni var að skila einum slíkum, reyndar allt of stórum en það skipti ekki öllu máli - við nenntum ekki að eyða heilu kvöldi á virkum degi í að flytja rúmið niður eftir þannig að við gripum tækifærið...
Finnur leigir sendiferðabílinn
Við lögðum sendiferðabílinn fyrir utan hjá áströlsku hjónunum og notuðum lykilinn til að komast inn í íbúðina, ekki laust við að okkur liði eins og bíræfnum innbrotsþjófum - mætt með risastóran sendiferðabíl til að tæma íbúðina þeirra af öllum verðmætum... :)
Finnur og Hrefna, nýbúin að "brjótast inn" í íbúðina. Það hefði verið gaman að sjá
svipinn á fólkinu á efri hæðinni þegar ókunnugt fólk mætti með sendiferðabíl og
fór að flytja húsgögn af neðri hæðinni í fjarveru leigjendenna.
Innbrotsþjófarnir gera sig tilbúna fyrir brottför.
Við komum rúminu svo fyrir í sendiferðabílnum en þegar við vorum við það að leggja af
stað heim kom ástralska parið svo við sluppum við innbrotsþjófastimpilinn.
Þegar heim var komið hittum við Todd og Kerri og okkar fyrsta verk var
að taka loftið úr vindsænginni við hátíðlega athöfn...
Vindsængin tekin úr notkun, búið að finna stað fyrir rúmið
Hrefna tekur sjálfsmynd í fullbúnu rúmi
Líkur þar með sögunni af rúminu góða...
And they lived happily ever after...
:)
Todd var annars bara í stuttri heimsókn, kom á laugardegi frá L.A. til að ná í restina af dótinu sínu sem var í geymslu hjá okkur, og keyrði síðan aftur til baka á sunnudegi. Laugardagskvöldið notuðum við því til að fara með honum út að borða og svo leigðum við "The Contender" sem Finnur sofnaði yfir. Hvort það var vegna þess að myndir væri svo leiðinleg eða vegna þess að hann var þreyttur eftir U-Haul keyrsluna vitum við ekki... ;)