Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
LA heimferð
Mánudagur 3. september (FBÞ) - [Sett á vefinn miðvikudaginn 5. september]
Og þegar heim var komið beið ilmandi lambakjötið eftir okkur... Mmmmmm.....
Gunnhildur matreiðslumeistari og feðgarnir Jón og Orri
Helena leikur við hvurn sinn fingur...
Hrefna staðin að verki við að fá sér vatn... hmm....
Jón, Orri og Finnur við matarborðið
Gunnhildur sker kjötið...
Finnur og Helena ræða saman
Gunnhildur undirbýr eftirréttinn, ís með ávöxtum og rjóma og
bræddu súkkulaði...
Helena komst aðeins í súkkulaðið líka :)
Af hverju láta börnin svona ófriðlega, viljið þið meira súkkulaði? :)
Stillt til friðar... :)
Morguninn eftir var komið að góðverki heimsóknarinnar af hálfu Finns, að setja upp netkerfi
á heimilinu svo að allar tölvurnar gætu samnýtt ADSL Internet-tenginguna en síðan var
haldið sem leið lá heim... :)
Fjallgarðurinn við Los Angeles
Á þjóðvegi 5 á leiðinni er svo stórt kúabú að maður þarf að sjá það til að trúa því...
Myndin sýnir aðeins örlítið brot af beljunum sem spóka sig þarna á víðáttunni nánast
svo langt sem augað eygir, og tekur heillangan tíma að bara aka framhjá því með
viðeigandi fjósalykt... :)
Það tók svo langan tíma að aka framhjá að Hrefna náði
fimm myndum af kúabúinu, þrátt fyrir að greitt væri ekið
(við ákváðum þó að hlífa ykkur og sýna aðeins tvær þeirra) :)
Á leiðinni til baka ákváðum við að taka stystu leið, þrátt fyrir að þurfa að fara í gegnum Gilroy (vegur 152),
enda mun ánægjulegra að keyra Gilroy norður eftir heldur en suður eftir, sökum hönnunar á vegakerfinu.
Við tókum líka upp á því snilldarbragði að keyra í gegnum El Camino Real frá Morgan Hill og í gegnum miðbæ
San Jose í stað þess að taka 101 sem þýddi að við losnuðum við bílastöppuna á þjóðvegi 101
og keyrðum í staðinn gegnum tóman miðbæ San Jose
(virtist sem allir íbúar San Jose væru fastir í umferðinni á 101)
Og þar með lýkur ferðahelginni til Los Angeles og kunnum við Gunnhildi og Jóni bestu þakkir fyrir! :)