Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Universal Studios
Sunnudagur 2. september (FBÞ)  - [Sett á vefinn miðvikudaginn 5. september]

Það er að sjálfsögðu ekki hægt að fara til LA án þess að krossa allavega eitt kennileiti út af listanum og í þetta skiptið varð Universal Studios fyrir valinu. Universal Studios er skemmtigarður með kvikmyndaþema þar sem hægt er að fara inn á stuttar sýningar tengdar kvikmyndum frá Universal Studios, fara í útsýnisferðir í strætó um kvikmyndaverið og fara í vatnsrússíbana - svo fátt eitt sé nefnt...

Gosbrunnurinn fyrir utan miðasöluna sportar risavaxinni útgáfu
af merki Universal Studios

Við biðum í einn og hálfan klukkutíma í biðröð í steikjandi sól og hita
bara til að kaupa miða og vissum að meðalbiðtími fyrir hverja sýningu
væri um einn klukkutími þannig að...

... við ákváðum að kaupa Director's Pass á tvöföldu verði til að geta
sloppið við allar biðraðirnar - sem var algjör snilld enda garðurinn troðfullur
af fólki (eins og gera mátti ráð fyrir um helgi - sérstaklega Labor day helgi)

Director's passinn virkar þannig að við hliðina á aðalinnganginum á hverri sýningu
(þar sem kílómetralangar biðraðir eru) er sérstakt stjörnumerkt hlið sem gengið er inn um
og liggur þá gangur inn í lítið herbergi eða afgirt svæði sem rúmar lítinn hóp fólks (sem
keypti líka Director's Pass).

Í herberginu er kannski (eins og í þessu tilfelli) sjónvarp sem sýnir hversu langar raðirnar
eru fyrir utan, sem er mjög gott upp á sálfræðina -  svona svo að mönnum
líði betur yfir að hafa spreðað peningunum í svona vitleysu... :)

Byrjað er síðan á því að hleypa fólkinu í þessu ákveðna herbergi/svæði
inn á sýninguna og síðan er salurinn fylltur af þeim sem borguðu venjulegt miðaverð...
Með þessu móti þurftum við aldrei að bíða í biðröð - þrátt fyrir að garðurinn væri smekkfullur af fólki -
og þess fyrir utan fengum við alltaf bestu sætin! :)

"Dobbel ó seven.... ja, eða kvenkyns-verkfræði-útgáfan af honum..." :)

Fyrsta sýningin sem við fórum á var Terminator sýningin, sem
er þrívíddar-kvikmyndasýning með tilheyrandi þrívíddargleraugum
í anda Terminator 2 myndarinnar (með upprunanlegum leikurum og öllu...)
þar sem Arnold og Edward Furlong sprengja upp Skynet í framtíðinni... BÚMM!! :)

Ef vel er gáð sést eftirlíking af T2000 vélmenninu
í myndinni bak við glerið...

Við settum saman stíft plan til að fara á sem flestar sýningar
og mögulegt væri, (enda búin að borga okkur inn margfalt) þannig að oft var
hamagangur í öskjunni að reyna að ná að gleypa í sig eina
samloku eða svo áður en næsta sýning byrjaði... :)

Í þessu tilfelli var það Waterworld, í stíl við mynd Kevin's Costner's og er ein
af bestu sýningunum í garðinum... Hér er sýningin reyndar búin og allir að fara út -
enda virtist ekki skynsamlegt að taka fram myndavélina fyrr vegna "skvetthættu".

Við völdum okkur nefnilega sæti rétt fyrir aftan "Soak Zone" (fyrstu fimm raðirnar
eða svo), til að vera sem næst hasarnum - án þess þó að blotna of mikið... :)

Waterworld sýningin var stutt hasarleikrit í stíl við þema myndarinnar (leitina að þurru landi)
og var sviðsettur bardagi við óvinina sem réðust á virkið með tilheyrandi skothvellum og
sprengingum, allt sviðsett með flugeldum og tímasettum sprengihleðslum...

Að sjálfsögðu fylgdu tilheyrandi áhættuatriði á borð við slagmál á virkisveggnum
og eltingarleikur á vatnssleðum (jetski)....

Við lok hasarsins var síðan flugvél flogið (eða skotið öllu heldur) yfir
virkisvegginn (þar sem græna hliðið er til hægri á myndinni)
og lenti hún á vatninu og rann í áttina að áhorfendunum...

Betri mynd af flugvélinni

Útsýnið úr garðinum var líka flott sérstaklega þar sem gott skyggni var í
Los Angeles þennan dag... til vinstri sést rúllustigi niður á neðri hluta
garðsins þar sem hægt var að fara á BackDraft sýningu (þar sem
settur var á svið bruni í verksmiðju) og Jurassic Park vatnsrennibraut...

Inngangurinn í Jurassic Park vatnsrennibrautina
(ekki veit ég hvaðan allir þessir dvergar komu - hmmm... kannski ég hafi bara rétt úr bakinu)
:) :)

Plastyfirhöfnin bjargaði því sem bjargað varð - en kom ekki í veg
fyrir blautan koll og rennandi blauta neðri hluta skálmanna á stuttbuxum... :)

(eru skálmar á stuttbuxum?) :)

Eini staðurinn þar sem passinn okkar var ekki jafn hentugur var á leiðinni í útsýnisferð um
kvikmyndaverið, en við létum okkur bara hafa það að bíða með "pöpulnum"... :)

Útsýni yfir kvikmyndaverið þar sem búið er að setja upp nákvæma eftirlíkingu af
borgum frá mismunandi tímum og mismunandi stöðum, allt gert með það sem kaninn kallar
"stærófóm"... Hvíta húsaþyrpingin lengra í burtu er síðan WB kvikmyndaverið

Í rútutúrnum keyrðum við í gegnum þessa borg og komumst að
því að yfirleitt er ekki um annað að ræða en framhliðar enda
er Hollywood ekkert annað en ein stór blekking...

Maður tekur jú vinstri beygju hjá markaðstorginu í litla smábænum í Mexíkó
og er þá allt í einu kominn til New York á þriðja áratug þessarar aldar,
þar tekur maður hægri beygju hjá ölkránni og er þá kominn í lítið
fjallaþorp einhvers staðar í Evrópu

(nákvæm staðsetning skiptir ekki málið því að
þeir skipta bara um tungumál á skiltunum, eftir þörfum)... :)

Hér má sjá leiðsögukonuna sem við sátum nánast ofan í en hún var mjög lífleg og
dramatísk í lýsingum á atburðum og leikendum kvikmyndaversins... enda "aspiring actress"... :)

Glöggir kvikmyndaáhugamenn taka kannski eftir því að hér má sjá
hinn fræga ráðhúss-klukkuturn úr myndinni Back To The Future...

Og King Kong (hausinn 3 metra hár) birtist að sjálfsögðu skyndilega í myrkvuðu
húsasundi og hrelldi saklausu ferðamennina...arrrrgggghhh!!

"Lilli minn, ertu kominn með permanent??"
(smá lókal húmor sem fjölskylda Finns á að fatta)
:) :)

Hér má sjá geimfarana fjóra í myndinni Appollo 13, talið frá hægri:
Bill Paxton, Tom Hanks, Kevin Bacon og Finnur Breki.

Ein síðasta sýningin sem við sáum var Animal Planet Live þar
sem skemmtikraftarnir voru úr dýraríkinu, aðallega hundar og fuglar
en einnig grettinn api sem hér er að hnýta í stjórnandann
(allt partur af sýningunni)...

Þessari litlu stelpu var sagt að horfa á hundinn sem kæmi til hennar
frá hægri og á meðan hún tók ekki eftir báru aðstoðarmennirnir
inn risastóra kyrkislöngu frá vinstri og lögðu í fangið á henni...

Hún varð svona frekar stjörf en herti svo upp hugann og klappaði henni... :)

Og þegar kvölda tók var kominn tími til að halda heim á leið
eftir atburðarríkan dag þar sem við náðum að skoða nánast
allar sýningarnar (nema eina) á innan við 6 klukkutímum, og
það á háannatíma - þökk sé passanum okkar!
Gunnhildur og Jón biðu okkar svo heima með nýsjálenskt lambalæri eins og sjá má á næstum síðu...