Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Vala & Augusto
Laugardagur 1. september (HMG) - [Sett á vefinn þriðjudaginn 4. september]
Mér tókst á einhvern óskiljanlegan hátt að klúðra því að taka símanúmerið hennar Völu með okkur til Los Angeles. Því fór nokkur tími í það á laugardeginum bara að ná sambandið við frúna (hún er sko ekki fröken lengur!) - en það hafðist allt að lokum! :) Ég prísa mig bara sæla fyrir nýju ofur-tölvuna þeirra og hvað hún er dugleg að sækja tölvupóst! :) En sem sagt - við ætluðum að hitta Völu og Ólíver um þrjúleytið - en fyrst þurftum við að kaupa okkur hleðslutæki fyrir farsímann okkar því okkur hafði líka tekist að gleyma því heima!
Keyrt eftir hraðbrautum í Los Angeles. Já.. ég veit, þær eru allar eins!
Stundum koma reyndar brýr... mér er tjáð að þegar margar
hraðbrautir mætast þá eru brýrnar stundum á fjórum eða fimm hæðum!!!
Eftir þó nokkuð handapat tókst okkur að finna hleðslutæki fyrir okkar síma og svo var haldið til Völu!
Bank, bank... - Hver er þar?! - Hrefna og Finnur!! :)
Hér eru Vala og Óliver í nýju íbúðinni hjá nýja bleika stólnum sínum af
"garðsölu" fyrr um daginn og nýkomin frá Ikea (sjá dagbók Völu)
Í Ikea keyptu þau þennan geðveika bláa geimskipslampa...
... sem var meiri að segja í stíl við naglalakkið hennar Völu!!
Verst að geimglansinn kemur ekki nógu vel fram á þessari mynd... :(
fara í CostCo - og V&Ó eru ekki meðlimir - þá þótti okkur Finni tilvalið að
fara með þeim þangað til að spreða smá penge...
CostCo er nefnilega ofurbúlla sem hleypir engum út án þess
að vera með 20 lítra af vatni og helst 5kg af þvottaefni!
Merkilegt nokk þá komst þetta allt í skottið á bílnum. Reyndar ætlaði ekki
að ganga þrautalaust að borga - það tók heil fjögur plastkort!! Það var nú
reyndar ekki út af fjármagnsleysi heldur því að CostCo tekur bara
American Express kreditkort...
Eftir að hafa kvatt Völu og Óliver tók næsta "deit" við... við þurftum nefnilega að hitta Augusto til að láta hann fá dótið hans Todds en Todd var nýfloginn til Chicago til að sjá um að fá restina af dótinu sínu sent til LA. Sem sagt - frekar flókið en einfalt samt! ;) (Ætti ég að senda þessa atburðalýsingu inn til þeirra sem skrifa sápuóperur?!!) Verst er að ég náð ekki myndum af Augusto að bera þyngsta kassann upp stigann - það var svo fyndið að ég hélt varla á mínum eigin kössum!! ;) Hvað um það - eftir burðinn þá var ákveðið að skreppa á California Pizza Kitchen og fá sér í gogginn.
Finnur og Augusto hinn ógurlegi bíða eftir borði.
Svo fengum við sæti - og ég bara varð að taka mynd af bjórglasinu hans Finns!
Kúúúl... í orðsins fyllstu merkingu! :)
Að sjálfsgöðu komst Augusto í farsímann okkar og skemmti
sér konunglega við að taka hann í sundur - hvenær ætli við lærum
af reynslunni?! Líklega aldrei.. hann er alltaf svo sakleysislegur!! ;)
Svo kom Laura skylmingastelpa og hálf-kærasta hans Augusto og settist hjá okkur
en hún var nýkomin úr afmælisveislu pabba síns. (Getur einhver bent mér á námskeið
til að hætta að líta út eins og bjálfi á myndum?!?! ;)
Eftir matinn fórum við svo og keyptum okkur ís. Síðan var farið heim til Augusto og rabbað saman en um síðir urðum við að fara heim því brosvöðvarnir okkar voru uppgefnir af öllum hlátrinum!! :D Augusto flytur aftur til Stanford í lok september en Laura byrjar í læknanámi í Los Angeles í vetur.