Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
LA ferð
Föstudagur 31. ágúst (HMG)  - [Sett á vefinn þriðjudaginn 4. september]

Í tilefni af "Labor Day Weekend" (þ.e. frí á mánudegi) ákváðum við Finnur að skreppa niður til Los Angeles til að heilsa upp á Gunnhildi, frænku mína, og fjölskyldu ásamt því að kasta kveðju á nokkra kunningja sem við eigum þar.  Okkur grunaði að traffíkin yrði all hroðaleg á föstudeginum þannig að Finnur vann stuttan vinnudag og ég sleppti því alveg að mæta!  Ég er nefnilega búin að fá opinbert leyfi til að skrópa svoldið til að endurhlaða batteríin áður en næsta önn byrjar :)  Hvað um það - morguninn hjá mér fór í fataþvott og verslunarferð til að kaupa kassettur, en svo leiðinlega vill til að græjurnar í bílnum okkar eru kassettudrifnar en ekki geisladiskadrifnar.  Einnig er það svo að á leiðinni suðureftir eru fjallgarðar þar sem vonlaust er að ná útvarpstöðvum og því algjörlega nauðsynlegt að vera með annars konar tónlistaruppsprettu! :)

Finnur var sem sagt kominn heim á hádegi og þá hlóðum við bílinn af okkar drasli (fötum og tveimur sængum) áður en við fylltum bílinn af dótinu hans Todds sem hann geymir í geymslunni okkar - enda sjálfsagt að taka það með fyrst við vorum á leiðinni suðureftir hvort eð er! :)

Finnur að stíga upp í Trölla við upphaf ferðar, klukkan 13:00

En við fórum ekki langt heldur stoppuðum á "Jack in the box" til
að taka mannlegt eldsneyti fyrir ferðina í formi kjúklingaborgara...

Finnur óskar þess heitt að konan hans hætti að taka svona margar myndir
á almannfæri! ;)

En klukkan 13:25 vorum við orðin södd og lögðum í hann.  Á leiðinni sáum
við hinar ýmsu bílategundir - en þessi vann í keppninni "ljóstasti spoilerinn"... ;)

Í tilraun til að losna við umferðarhelvítið (sem nefnist vegur 152 um Gilroy) þá
keyrðum við í norður og tókum 880 og 580 til að komast á Interstate 5 (eða "Fimmuna")
sem liggur beinustu leið suður til Los Angeles - þegar maður er kominn á hana! :)

Áætlunin heppnaðist ágætlega - við sátum reyndar föst í stíflu í svona
klukkustund en það leystist úr henni og við tók fjögurra klst. keyrsla á fimmunni.
Fljótlega þurfti reyndar að kaupa eldsneyti og hér mun vera fyrsta skiptið
sem Trölli litli fær Chevron bensín en ekki Shell... Hann er svo dekraður!!

Svo var bara keyrt áfram sem leið lá suðureftir á 80 mílna hraða á klst (það er reikniæfing fyrir
lesendur að finna út hvað það eru margir km/klst... það eru 1,6 km í hverri mílu... ;)

Eins og tilheyrir þá keyrðum við fram á hús í flutningum
(sjá "Dalurinn" á Heimasíðu Hollu og Óla)

Ökuhetjan Finnur stóð sig með mikilli prýði og geispaði ekkert
svo rosalega oft! ;)

Klukkan 18:30 komum við síðan loksins að fjallgarðinum ógurlega
sem skilur að dalinn sem Fimman liggur eftir og Los Angeles...

Hér kom kassettan sem ég náði að gera um morguninn í góðar þarfir...
Sting með Brand New Day á A-hlið og svo Pulp Fiction á B-hlið... :)

Þegar við vorum næstum komin til LA þá blasti við þetta sviðna fjall
en hér er eldhættan víst "extreme" um þessar mundir.

Svo áttum við að bremsa til að fá borgara - en það var sama hvað við bremsuðum
mikið í brekkunni niður að Los Angeles - aldrei fengum við borgara! ;)

Svo sást líka í Six Flags rússíbanabrautagarðinn í fjarska - en ég held að við ættum
frekar að fara í Great America garðinn sem er í 15 mínútna fjarlægð frá okkur heima!

Klukkan 19:12 renndum við svo loksins í hlaðið hjá Gunnhildi, Jóni, Orra og Helenu eftir að hafa verið á ferðalagi í rúma sex klukkutíma.  Reyndar telst mjög gott að komast þetta á svona "stuttum" tíma á svona ferðahelgi - þegar við fórum til LA í nóvember á síðasta ári (fjögurra daga helgi) þá vorum við níu klukkustundir á leiðinni eftir að hafa verið föst á vegi 152 í þrjá tíma... grrr... ;)

Þegar til Gunnhildar (sem er systir pabba míns) var komið vorum við fljót að fá okkur í gogginn og síðan var sest niður og skipst á sögum.  Við vorum sérstaklega hrifin af gulrótarkökunni sem Jón bakaði - ja, eða náði í úr ísskápnum ;)
Jón og Finnur njóta lífsins yfir bjór og gulrótarköku

Hér er Orri - táningur heimilisins

Hér er Helena - prinsessa heimilisins - sem tókst á einhvern
óskiljanlegan hátt að brenna sig á hökunni með því að
renna nælonsokki fram og til baka yfir hana.

Og ekki má gleyma Gunnhildi sem hérna er að undirbúa
blóm fyrir þurrkun á laugardeginum.


Helena hélt sig að mestu leyti inni í svefnherbergi þar sem hún skoppaði
á dýnunni sinni (því við vorum í hennar herbergi) og horfði þess á milli
á sjónvarpið til vinsti (sem vantar á myndina)...

Annars á Helena þetta fína dúkkusafn og ofur-sæt gluggatjöld!
Þarna sváfum við! :)

Hér eru Gunnhildur, Jón og Finnur í eldhúsinu - og Jón eitthvað að
baxa við að ná mér á kubb... við sjáum hvernig það gekk síðar!

Jón er búinn að koma sér upp voða fínni skrifstofu-aðstöðu í bílskúrnum og þar
eru veggirnir hreinlega skreyttir með alls konar hugmyndum.  Jón er nefnilega
einn af þessum mönnum sem eru hreinlega að springa af hugmyndum! :)
Hér er Orri að líta spekingslega út fyrir myndavélina... ;)

Hvað varðar bílferðina þá skrifaði ég niður tímasetningar og annað slíkt smálegt til að halda mér vakandi og kannski að maður skelli því einhvern tímann upp í skemmtilegt graf einhvern daginn.  Einnig spiluðum við "spot the state" þar sem maður rýnir á bílnúmer og reynir að finna þau sem koma frá öðrum fylkjum en Kaliforníu.  Allt í allt fundum við bíla frá 20 fylkjum af þeim 50 sem eru í USA.  Ekki slæmt það! :)