Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Partý hjá Kerri
Fimmtudagur 30. ágúst (HMG) - [Sett á vefinn þriðjudaginn 4. september]
Fimmtudaginn fyrir "Labor Day weekend" hélt Kerri smá innflutningspartý. Þar sem Taly er ekki flutt inn ennþá þá var þetta bara innflutningspartý númer eitt... ;)
Jamm... þetta er Kerri... ;)
Mættir voru ýmsar sálir úr rafmagnsverkfræðinni þar á meðal...
Mike og Dan (reyndar úr medical-bio-eitthvað)...
Fraiser frá Kanada og Deirdre frá Írlandi - sem hér sýnir hvernig drekka skal
úr bjórflösku... Fyrst skal bera flöskuna hægt upp að vörum...
Eftir að flaskan hefur náð vörunum þá má halla höfðinu aftur og taka smá sopa.
Endurtakist þar til ekkert er eftir í flöskunni...
Reyndar kom Viola síðar um kvöldið og varð mjög hneyksluð á því að verið væri að
drekka hveitibjór (Hefeweissen) af stút... hann á víst einungis að drekka úr þar til gerðu glasi! :)
Svo var komið að aðalréttnum - ÍSnum!!!
Og ekki bara ís heldur ís með Bailey's, Kahlua, míní-M&M, kexi,
heitri "fudge"-sósu, súkkulaðisósu o.s.frv. o.s.frv...
Deirdre "pósar" við ísborðið... ætli þetta sé nægur ís?!
Svo var bara að ráðast á ísinn... Í fyrstu virtust stúlkurnar vera eitthvað hikandi
á meðan strákarnir virtust vera fastir í "konur og börn fyrst" rútínunni ;)
En svo létu Kerri og Deirdre undan og fengu sér vænan skammt! :)
Ísinn var vægast sagt ljúffengur... en mest af öllu kom á óvart hvað Bailey's og vanilluís á vel saman... merkilegt að maður skuli ekki hafa prófað það fyrr... en varúð... þetta er "ein besta leiðin til að verða fullur og feitur um leið" - eins og Vala orðaði það svo skemmtilega tveimur dögum síðar... ;)
Nei sko... Finnur OG Hrefna á SÖMU myndinni!
Undir lokin þá var Deirdre orðin voða væn við einn bangsann hennar Kerriar...
Um tíuleytið héldum við heim á leið til að undirbúa Los Angeles helgarferðina í tilefni af því að það var þriggja daga helgi fram undan. Það tókst þó ekki betur en svo að við gleymdum farsímanum okkar heima hjá Kerri og Finnur þurfti að gjöra svo vel að fara þangað aftur kvöldið áður og ná í hann. Kerri var nefnilega að fara eldsnemma morguninn eftir til Yosemite í brjálæðislegt fjallaklifur. Okkur bauðst reyndar að fara með en við afþökkuðum pent af heilsufarsástæðum því mesta púl sem Finnur hefur lagt í undanfarið ár er að ganga heilan hring um The Great Mall og ég hef ekki gert mikið meira en hjólað í vinnuna ca. þrisvar í viku... Kannski að við förum í fjallaklifur þegar meira "eðlilegt fólk" ákveður að skreppa!! ;) (Kerri fer út að hlaupa á hverjum degi og svo er hún bráðum að fara að æfa á "götuhjóli" og sund og svo ... og svo... maður verður bara móður!! :)