Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Heimsókn G&B
Sunnudagur 26. ágúst (HMG)  - [Sett á vefinn mánudaginn 27. ágúst]

Til að endurgjalda heimboðið þá buðum við Gísla og Bobby í mat á sunnudagskvöldið.  Reyndar byrjaði dagurinn á því að við fórum í Stanford Shopping Center til að reyna að finna svartar Levi's buxur á Finn (þetta fer að verða að einhvers konar complexi... ;) en í ljós kom að Macy's selur ekki Levi's.  Þar með missti Finnur allan fataverslunaráhuga og við enduðum í staðinn í matarinnkaupum í Safeway.  Að því loknu var haldið heim þar sem við lúlluðum smá (erfitt að versla svona mikið á svona stuttum tíma) og svo var tekið smá til áður en Gísli og Bobby komu.  

Þau komu með ísgerðarvél með sér - enda planið að búa til ís - en því miður gleymdist einn hlutur heima þannig að það verður að bíða betri tíma.  Það var svo sem ekki það eina sem fór úrskeiðis því kjötið sem við keyptum í Safeway reyndist vera ólseigt og með lifrarbragði en það varð bara að hafa það...  Finnur heimtar að héðan í frá verði allt kjöt í svona veislur keypt hjá Dittmer's í framtíðinni.

En til að bæta málið þá skruppu Finnur, Gísli og Bobby út í búð eftir matinn og keyptu ís á meðan Hrefna var eftir heima og tók til eftir matinn.  Síðan var étinn vanilluís með ávaxtakokteil, rjóma, hnetum, hnetusmjöri og súkkulaðisósu - og geri aðrir betur!!  Nammi namm er það eina sem maður gat sagt!!  

Hrefna, Bobby og Gísli hafa það gott.  En mikið rosalega er Finnur líka hár!..
Við virkum alveg pínulítil!! ;)

Af öðrum fjölskyldumeðlimum er það að frétta að í dag var skírður sonur Arnars móðurbróðurs og Magneu.  Drengurinn heitir Eyþór Arnarsson sem er alveg nýtt nafn í báðum fjölskyldum.  :)  Hér með er pantaður myndavefur af drengnum!! ;)

Einnig er það að frétta að Hulda móðursystir og fjölskylda (þ.e.a.s. Ágúst maðurinn hennar, Unnar Steinn sonur hennar, Hjörtur sonur hans, Ásdís Sól dóttir þeirra og Óðinn sonur þeirra - alveg týpísk íslensk fjölskylda!) eru flutt til Belgíu þar sem Ágúst verður menningardiplómati ef ég man rétt.  Hér með er pantaður vefur með myndum og allegræ! ;)  Eftir verður Embla dóttir Ágústar en hún kemur væntanlega í heimsókn til þeirra reglulega! :)

Hulda með Óðinn og Arnar með Eyþór og Magnea mamma er ekki langt undan :)