Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
The Great Mall
Laugardagur 25. ágúst (HMG) - [Sett á vefinn mánudaginn 27. ágúst]
Á tveggja ára fresti rankar Finnur við sér og fattar að hann þarf nauðsynlega að kaupa sér ný föt. Fyrir tveimur árum var verslaður alklæðnaður í Bluewater kringlunni í Englandi (sem er besta og flottasta kringla sem ég hef nokkurn tíman komið inn í - Oxford Street í London er hreinlega lummó í samanburði!) og nú, tveimur árum síðar, var kominn tími á nýja fataverslanaferð. Það skal tekið fram að ég stakk ekki upp á þessu - Finnur sjálfur muldraði það á föstudagskveldi að hann þyrfti nú eiginlega að kaupa sér ný föt. Ætli það tengist því nokkuð að ein samstarfskona hans er farin að kalla hann "The Blue Fish" þar sem hann er alltaf í sömu bláu peysunni... ?! ;)
Hvað um það - eftir smá reikistefnu (þar sem ég taldi upp fataverslanamöguleikana hans Finns) - var ákveðið að fara í The Great Mall, sem er "outlet"-kringla í Milpedas þar sem þekkt fyrirtæki selja hluti ódýrara en gengur og gerist.
Jamm - við virtumst hafa fundið The Great Mall þrátt
fyrir að hafa tekið nokkrar vitlausar beyjur á leiðinni... ;)
Fyrsta stopp var í Levis búð - og ég fékk að vera með
Finni inni að máta. Er ég ekki alltaf heppin! :)
Kaupa þennan?!
Jú, þessi var keyptur... :)
þá var maturinn ekkert til að hrópa húrra fyrir. Við hefðum kannski átt að
fatta þegar við gengum í gegnum risastóran leiktækjasal til að komast að
veitingastaðnum að hér væri ekki um stórkostleg gæði að ræða! ;)
En það var eitt nokkuð mergjað við staðinn og það voru vifturnar í loftinu.
Þær voru nefnilega allar knúnar af alvöru viftureimum!! :)
Eftir matinn héldum við áfram göngunni og komum þá að þessu
frekar skondna "Aqua Massage" tæki. Inni í þessu apparati liggur
manneskja á maganum undir þykkum gúmmídúk sem á dynur vatn af
miklum ákafa. Hver veit nema maður láti freistast einhvern tímann!!?! ;)
Hér er séð yfir einn ganginn. Kringlan er á einni hæð og það tók okkur
góðan tíma að ganga hringinn. Við keyptum eitthvað af peysum/bolum á Finn
en tókst ekki að finna svartar Levi's buxur. Það gengur bara betur næst!
Hins vegar birgði hann sig vel upp af sokkum - oh hvað ég var fegin!
Hér er svo drengurinn kominn í nýja fína bolnum sínum! :)