Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Kerri flytur
Föstudagur 24. ágúst (HMG) - [Sett á vefinn mánudaginn 27. ágúst]
Þegar ég kveikti á tölvunni klukkan 08:30 á föstudagsmorgni biðu mín tveir tölvupóstar frá Kerri. Annar var sendur klukkan 03:22 þar sem Kerri bað mig um að koma með extra plastpoka í vinnuna/skólann. Hinn pósturinn var sendur klukkan 05:18 þar sem Deirdre og mér var tilkynnt að hún væri búin að pakka öllu niður og þrífa alla íbúðina. Aðeins ætti eftir að flytja allt draslið út og ryksuga...
Þar sem að ég hafði skilið hjólið eftir í vinnunni daginn áður þá notaði ég tækifærið og skutlaði Finni í vinnuna og hirti bílinn. Við erum ennþá með "parking permit" í Escondido Village (þar sem við bjuggum og Kerri býr enn) sem þýðir að ég get ekki lagt nær vinnunni en þar, þannig að ég lagði bílnum fyrir utan blokkina hennar Kerri-ar. Þangað var ég komin um klukkan 10. Svona til gríns þá hringdi ég bjöllunni hennar og mér til nokkurs undurs þá var Kerri komin á fætur eftir tveggja tíma svefn! Þar með var nokkuð ljóst að ég myndi ekkert fara í vinnuna þann daginn - sem er svo sem ekkert svo slæmt þar sem yfirmaðurinn er farinn í frí í öðru fylki - og við Kerri tókum til að við að fylla báða bílana okkar af draslinu hennar.
Við fylltum báða bílana tvisvar og svo var farin aukaferð á einum bíl til að ná í smá drasl úr ísskápnum. En að degi loknum þá var Kerri flutt! :)
Kerri að leggja lokahönd á þrifin í dimmu gömlu íbúðinni
Hér er hún hins vegar í nýja herberginu. Til hægri við hana er borvélin
okkar sem átti eftir að gegna veigamiklu hlutverki síðar um daginn...
Kerri á alveg óhugnanlega mikið af fötum - sem virðist gilda almennt um kana.
Það hefur kannski eitthvað með það að gera að við hin þurfum að taka flugvél
til að komast til Bandaríkjanna með tilheyrandi þyndartakmörkunum...
Hvað um það...hér er verið að tæma skottið á Trölla :)
Eftir 5 tíma púl þá var allt draslið komið úr einni íbúð í aðra...
... og kominn tími á smá handáburð :)
Eftir að hafa dröslað öllu dótinu milli íbúða þá tókum við okkur hlé og skruppum í Town & Country Village og fengum okkur að borða á Douce France. Þar á eftir létum við þvo bílana á nálægri bílaþvottastöð (enda þrífur ekki neinn heilvita maður bílinn sinn sjálfur þegar maður getur borgað öðrum fyrir að gera það) og svo var haldið aftur í nýju íbúðina til að (dúmmdúrúrúmm) setja upp gardínurnar!!
Það er skemmst frá því að segja að Ikea má skammast sín fyrir slóðalega hönnun á gardínustangarhöldurum - til þess að skrúfa efri vegg-skrúfuna þá rekst maður illilega í sjálft stykkið (það sem skagar út frá veggnum) sem veldur alls konar vandræðum. Kerri tók að sér að skrúfa fyrstu skrúfuna og það endaði næstum með blóðsúthellingum - þ.e. ef gardínustangarhaldarinn og skrúfan hefðu verið með blóð. Þegar hér var komið sögu var nefnilega skortur á svefni heldur betur farinn að segja til sín...
Ég tók að mér næstu tvo haldara og eftir smá aðlögunartíma þá fór þetta að ganga betur - sérstaklega eftir að við komumst að því að skrifborðið var betri staður til að standa á heldur en stóllinn því það er svo miklu auðveldara að nota borvél í hökuhæð en þegar maður þarf að lyfta henni upp fyrir haus... Svona eru kvenkyns upphandleggir slappir... ;)
Hrefna "the screwing queen" með borinn okkar góða.
En þetta hafðist allt að lokum og fröken Kerri er með heilt myndaalbúm af nýju íbúðinni sinni hér undir "Pics".
Eftir flutningana fór ég síðan og náði í Finn og eldaði síðan fyrir hann kjúlla. Restin af kvöldinu leið fyrir framan sjónvarpið þar sem við vorum bæði dauð eftir daginn...