Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Ikea ferð
Fimmtudagur 23. ágúst (HMG)  - [Sett á vefinn mánudaginn 27. ágúst]

Eftir alveg frámunalega tíðindalitla viku þá var loksins komið að því að Kerri myndi flytja úr íbúðinni sinni (þar sem hún bjó í stofunni) í nýja íbúð á kampus.  Þar mun hún búa með Taly, en Taly er að vinna í einhverju öðru fylki í Bandaríkjunum um þessar mundir.  Hvað um það - í tilefni af tilvonandi flutningum þá stakk Kerri upp á Ikea ferð - og eins og sannur Íslendingur þá var ég að sjálfsögðu meira en til í það.  Eftir sæmilega mikið suð tókst okkur líka að slíta hina írsku Deirdre frá tölvuskjánum sínum og við lögðum af stað upp í Emeryville rúmlega klukkan þrjú.  Aldrei þessu vant þá var ég ekki með myndavélina okkar - en tók í staðinn slatta af myndum á myndavélina hennar Kerri.  Ég tel mig því vera í góðum rétti til að stela þeim af hennar síðu (sjá pics á síðunni hennar Kerri) og setja á mína síðu... sérstaklega þar sem Kerri er búin að stela góðum slatta af okkar myndum!!  (ókeiókei.. hún gaf mér reyndar formlegt leyfi!)  

Kerri keyrði upp eftir í sínum bíl.  Þar sem við lögðum af stað eftir klukkan þrjú
þá gátum við notað "Car-pool" akreinina sem bjargaði því sem bjargað varð í
umferðaröngþveitinu sem skapast alltaf í kringum Bay Area milli þrjú og sjö...

Deirdre og Hrefna að módelast fyrir framan Möbelfakta-græjurnar hjá Ikea.  
Nema hvað það heitir ekki Möbelfakta hérna... það heitir bara "Ikea tests quality"

Eftir að hafa gengið í gegnum íbúðasýningarbásana á efri hæðinni var
komið að því að leggja í smávöruna á neðri hæðinni.  Merkilegt nokk þá dugði
ein kerra fyrir okkur allar þrjár!

Ja..., ein "venjuleg" kerra og ein "flöt"-kerra...
Takið eftir stórkostlegu sólseturs-skýjamynsti í bakgrunninum :)

Svo var að koma öllu fyrir í bílnum hennar Kerriar
og samt hafa pláss fyrir Deirdre í aftursætinu!!

Og hér er hún greyið... sem betur fer þá er Deirdre í grennri kantinum
þannig að hún hafði það víst bara ágætt á leiðinni heim! ;)

Umferðin var miklu betri á leiðinni suðureftir - það tók bara tæpan klukkutíma
að keyra heim.  Síðan þurfti að ná dótinu úr skottinu - en þetta hafðist allt
enda þrjár fílhraustar kvenhetjur með verslunarbakteríu í för!

Og hvað var svo keypt?  Hmm... ég var verslunardrottning eins og venjulega og eyddi mestum pening, enda keypti ég sængurföt og Narvik trékistu ásamt fleira smádrasli...

Narvik kistan sem ég keypti

Kerri keypti sitt lítið af hverju... helst má nefna ramma og gluggatjöld (sem ég er að hugsa um að gera líka einhvern tímann á næstunni).  Deirdre (sem býr í næstum tómri íbúð) keypti hræódýrt sófaborð, hræódýran sjónvarpsstand og ýmislegt fleira.  Þrátt fyrir að hún ætti stærstu kassana þá eyddu hún minnstu!  En hvað lífið er ósanngjarnt!! ;)

Stofuborðið hennar Deirdre... eitthvað minnir mig að það
hafi verið lengra?.. hmm...

Annars eru þessar Ikea myndir fengnar af Ikea vefnum.