Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Hrefnusaumó
Föstudagur 17. ágúst (HMG)  - [Sett á vefinn sunnudaginn 19. ágúst]

Þá var loksins komið að mér að halda saumaklúbb fyrir íslensku konurnar á svæðinu.  Eins og tíðkast með saumaklúbba þá ákvað ég að leggjast í smá bakstur og notaði tækifærið til að taka mér frí í vinnunni... kom reyndar við í búð um morguninn og keypti einn lítinn litaprentara og fór með upp í skóla... en þar með var vinnuframlag mitt upptalið þann daginn... ;)  

Því næst lá leiðin í Safeway til að kaupa í baksturinn en það var nú ekkert einfalt - ég var nefnilega með íslenskar uppskriftir - og hér er sko ekkert selt neitt "Haust" hafrakex eða Daim kúlur!!  Ég var samt búin að uppgötva að smjörlíki er "margarine" og í ljós kom að rjómaostur er seldur sem "cream cheese" svo það fór ekkert á milli mála.  Það tók samt ágætan tíma bara að finna "regular cream cheese" en ekki "soft" eða "light" rjómaostur...

Þegar heim var komið var síðan bara að hella sér í baksturinn...

Rice Krispies kaka frá Írisi Baldursdóttur
Iris' Rice Krispies cake
Botnar:
4 eggjahvítur
2 dl sykur
1 dl púðursykur
Þeytt saman þar til orðið vel stíft (hægt að hvolfa skálinni án þess að það hreyfist).

2 bollar Rice Krispies
bætt varlega út í.  

Allt sett í tvö vel smurð teflon form, ekki láta deigið ná alveg út í kantana.  Bakað við 150°C (300°F) í 50-60 mínútur.

Á milli botnanna er hafður þeyttur rjómi
Bottoms ;)
4 eggwhites
2 dl sugar
1 dl brown sugar
Whipped together until stiff enough to turn bowl over (without everything spilling all over the place)!

2 cups Rice Krispies
added gently to the mix.

All put into two well greased (with margarine) teflon forms, don´t let the dough touch the sides.  Bake at 300°F for 50-60 minutes and cool.

Put whipped creme between the "bottoms"...
Krem:
4 eggjarauður
50 gr. flórsykur
40 gr. smjörlíki
80 gr. súkkulaði

Eggjarauðurnar og flórsykurinn þeytt saman.  Smörlíkið og súkkulaðið brætt varlega yfir vatnsbaði.  Öllu blandað saman og hellt yfir tertuna.
Creme:
4 egg-yolks
50 gr. powdered sugar
40 gr. margarine
80 gr. chocolate (baking)

Whip the yolks and the sugar together.  Melt margarine and chocolate in a bowl over water.  Mix it all together and put on top of cake.

Hér er síðan ferlið í myndum! :)

Deigið að verða tilbúið - bara eftir að hræra Rice Krispies-ið betur saman við.

 
Botnarnir komnir inn í ofninn.  Plöturnar undir kökunum eru nauðsynlegar
til að dreifa hitanum því undir þeim er óvarið hita-element...

Hér eru svo þessar elskur.. :)

Svo var settur rjómi á milli...

... og súkkulaðikrem notað til að toppa verkið! :)


"Daim" ostakaka frá Magneu Gunnarsdóttur
Magnea's Chocolate cheesecake
Botninn:
16 Haust hafrakex-kökur (eða annað gróft kex)
125 gr. brætt smjörlíki

Kexið mulið og hrært saman við bráðið smjörlíkið.  Sett í botninn á forminu og þjappað vel niður.  Látið kólna í 30 mínútur.
The bottom:
15-20 oat or wheat - crackers or biscuits
125 gr. melted margarine

Crackers crushed and stirred together with margarine.  Put into the serving dish and pressed hard.  Let cool for 30 minutes.  
Kremið:
400 gr. rjómaostur
120 gr. flórsykur
250 gr. Daimkúlur/súkkulaði
1/4 lítri þeyttur rjómi

Rjómaostur og flórsykur hrært saman.  Þeyttum rjóma bætt úti í og síðan súkkulaðinu.  Þessu er hellt/smurt yfir botninn og látið bíða í ísskáp í minnst 2 klst.
Creme:
400 gr. cream cheese
120 gr. powdered sugar
250 gr. chololate bits of choice
1/4 litre whipping cream (whipped)

Cream cheese and powdered sugar mixed well together.  Then add whipped cream and finally chocolate.  Put into the serving dish and refrigerate for at least 2 hours.

Og svo ferlið í myndum... :)

Hér er kexið sem ég notaði... silly fólk að selja ekki hafrakex!!

Hér er botninn kominn ásamt kreminu og súkkulaðinu...

Stolt húsfrú með ostakökuna sína! ;)

Gulrótarkaka af uppskriftir.is
Carrot cake
Kakan:
5 dl gulrætur
5 dl hveiti
5 dl sykur
4 stk egg
2 dl matarolía
2,5 dl valhnetur
2 tsk kanill
2 tsk lyftiduft
1,5 tsk salt
1,5 tsk matarsódi
1 tsk múskat
Lítil dós kurlaður ananas

1. Rífið gulræturnar og grófsaxið hneturnar
2. Blandið saman hveiti, lyftidufti, matarsóda, salti, kanil, múskati og sykri.
3. Hrærið saman egg og olíu og blandið með sleif saman við hveitiblönduna ásamt gulrótum, ananaskurli og hnetum.
4. Setjið deigið í smurða ofnskúffu og bakið neðst í ofninum við 180°C í u.þ.b. 60 mínútur.  Látið kökuna kólna.
The cake:
5 dl. carrots (shredded)
5 dl. flour
5 dl. sugar
4 eggs
2 dl. cooking oil
2.5 dl walnuts
2 tsp cinnamon
2 tsp baking powder
1.5 tsp salt
1.5 tsp baking soda
1 tsp nutmeg
Small can of crushed pineapple

1. Shred the carrots and cut the walnuts
2. Mix together flour, baking powder, baking soda, salt, cinnamon, nutmeg and sugar.
3. Mix eggs and oil and combine with flourmix along with carrots, pineapple and nuts.
4. Put the dough on a well greased form and bake at 350°F for 60 minutes in the lowest position.  Let the cake cool.
Kremið:
250 gr. flórsykur
150 gr. rjómaostur
1,5 dl valhnetur til skrauts
sítrónusafi eftir smekk

5. Hrærið saman rjómaost, flórsykur og sítrónusafa.
6. Smyrjið kreminu á kalda kökuna og stráið grófsöxuðum valhnetum yfir til skrauts.

Berið fram með rjóma.
Creme:
250 gr. powdered sugar
150 gr. cream cheese
1.5 dl walnuts for decoration
lemon juice by taste

5. Mix cream cheese, powdered sugar and lemon juice.
6. Put the creme on the cold cake and sprinkle walnuts on top.

Serve with whipped cream.

Myndir - myndir!!

Sullumbull og svínaríííí... alltaf... eitthvað fylleríííí...
(Hvernig var aftur lagið af Eniga Meniga?!)

Hér er kakan komin í ofninn... eitthvað er hún samt undarlega ljós á þessari mynd...?!

Kreminu smurt á kökuna...

Voila!!  Eitt stykki gulrótarkaka! :)

Heitur réttur frá Magneu Gunnarsdóttur
Magnea's Hot dish
1/2 franskbrauð
1 dós Cambells sveppasúpa
400 gr. aspas eða ananas
2 msk majónes
1,5 dl rjómi
200 gr. skinka
rifinn ostur (Mozzarella)
Steinselju-og timiankrydd

Franskbrauð tætt niður og sett í smurt eldfast mót.  Sveppasúpa, ananas/aspas SOÐ, rjómi og majónes sett í pott og hitað aðeins.  Blöndunni hellt yfir brauðið.

Aspas/ananas og skinka brytjað niður og dreift ofan á.  Rifnum osti sáldrað yfir.  Kryddað og bakað við 175°C í 35-40 mínútur.
1/2 white bread
1 can Cambells mushroom soup
400 gr. aspargus or pineapple
2 tbsp mayonnaise
1.5 dl creme
200 gr. ham
shredded cheese (Mozzarella)
Parsley and timian (thyme?)

White bread shredded into greased form.  Mushroom soup, aspargus/pineapple JUICE, cream and mayo mixed and warmed on the stove.  Pour the mixture over the bread.

Chop the aspargus/pineapple and ham and spread over the bread.  Cover with shredded cheese and spices.  Bake at 350°F for 35-40 minutes.


Hér er sósubleytt brauðið ...

Ofan á það kom skinka og aspas og ofan á það kom ostur!! :)

Svo var eldamennskunni lokið og bara að bíða eftir fyrstu gestunum! :)

Mættar voru Auður, Elsa, Lotta, Kristín, Berglind, Maddý og Guðrún.
Lotta kom með brúðkaupsalbúm með sér en svo skemmtilega vildi til
að Logi kom með albúmin okkar Finns með sér til landins þannig að...

...góður tími fór í að spegúlera í þeim :)

Svo var ráðist á veitingarnar - nammi!! :)

Gúmmilaðið var voðalega gúmmilaðilegt þó ég segi sjálf frá... ;) hehe

Maddý og Guðrún

Hrefna, Auður og Elsa

En svo kláraðist kvöldið og brátt var enginn eftir nema ég og vínglösin...

Í tilefni af því að Todd er að flytjast niður til LA þá buðum við nokkrum sálum í heimsókn á laugardeginum til að segja bæbæ við Todd og reyna að klára saumaklúbbsleyfarnar!!  Todd er með smá drasl í geymslu hjá okkur sem hann þarf að sækja seinna þannig að við eigum nú eftir að sjá drenginn eitthvað meira...! :)
Todd, Luiz, John, Kerri og Finnur.

Eftir að hafa étið á okkur gat skruppum við svo í bíó og sáum American Pie 2 - ahhh... alltaf gaman að sjá góða vini aftur.... you see... this one time at band camp... ;)