Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Monterey
Sunnudagur 12. ágúst (HMG)  - [Sett á vefinn mánudaginn 13. ágúst]

Þar sem að nú var liðinn heill mánuður frá síðustu skoðunarferð okkar um "nágrennið" (sjá Lassen) þá var ákveðið að kveðja okkar annars ágætu íbúð í nokkra klukkutíma og keyra niður til Monterey.  Reyndar tókst okkur ekki að koma okkur út úr íbúðinni fyrr en klukkan 3 eftir hádegi því fyrst þurfti að þvo tvær þvottavélar, Hrefna hringdi í familíuna bæði á Englandi og á Íslandi og Finnur var á fullu í tölvunni.  Hvað um það - klukkan 3 var lagt af stað suður eftir 101 hraðbrautinni eftir stutt stopp á bensínstöð.

Umferiðin gekk yfirleitt nokkuð hratt fyrir sig en við lentum samt tvisvar
í umferðarhnút.  Í þeim fyrri rákumst við á þennan fína Pontiac Firebird :)

Á leiðinni að Monterey keyrðum við líka fram hjá þessari "Antík-hlöðu".
Kannski að maður stoppi við næst þegar við eigum "leið um".
Það tók okkur annars einn og hálfan tíma að keyra niður eftir...

Loksins komum við inn í Monterey.  Eins og oft er algent þá er "inngangurinn"
með vegg þakinn merkjum hinna ýmsu félagasamtaka sem starfa í bænum.
Á myndinni má líka greina kortabókina sem liggur yfirleitt í fanginu á mér
í svona bíltúrum :)

Við fundum bílastæði í þar til gerðu bílastæðahúsi og
röltum því næst niður í bæ.  Þar blasti fystur manna við hann
John Steinbeck sem ritaði einmitt bókina "Cannery Row"
sem er sama gata og þessi fína brjóstmynd stendur við...

Útsýnið var ekkert til að kvarta yfir - svo lengi sem það var ekki þoka! ;)
Á þessu litla torgi voru menn að spila á "indjánaflautur"... mjög flott!

Það er víst alveg urmull af túrhestum sem heimsækir Monterey á hverju ári
og því ætti engan að undra að þar eru líka búðir sérhannaðar fyrir túrhesta.
Það má greina Hrefnu þarna í fjarska... en þetta er víst 700 Cannery Row.

Svo kom nú toppurinn á tilverunni... Bubba Gump Shrimp Co!!
Alveg eins og í Forrest Gump myndinni!!  Nú er það spurningin...
Hvort kom fyrst?  Eggið eða hænan?!

Þeir eru meiri að segja með Forrest Gump bekk með hlaupaskóm og tösku!!!  
Því miður er Finnur með svo stórar lappir að hann gat ekki fetað í
fótspor Forrestar Gump... það gengur bara betur næst!!

Þetta hús sem líklega frá sardínudögum Monterey - en í dag eru þar aðallega
túrhestaverslanir... og nuddstofa!

Finnur inni í túrhestaversluninni.  Þarna var allt morandi í al-bandarískri
menningararfleifð - t.d. mynd af Harrison Ford.

Hér er síðan alveg óborganleg búð sem við rákumst á inni í 700 Cannery Row...
Hvítlauksbúð!!  Og þvílík lykt!! Oh, boy, oh, boy, oh, boy...

Smá partur af úrvalinu... Á einhvern óskiljanlegan hátt lifðum við
af hvítlaukinn og komumst út heil á höldnu!

Þegar þarna var komið var klukkan farin að nálgast fimm og kominn tími til að finna blessað 40 milljón dollara sædýrasafnið sem átti að vera þarna í nágrenninu samkvæmt túrhestabók sem Halli og Adda voru svo forsjál að gefa okkur fyrir rúmu ári síðan!  Við þangað!! :)

 Þegar af sædýrasafninu var komið þá vorum við orðin heldur betur hungruð og þá lá leiðin á "Clawdaddy's".  

Finnur fyrir framan Clawdaddy's



Við vorum svo óheppin að fá borð við gluggan (ókei þá... Hrefna bað um borð
við gluggann - en gerði mér ekki alveg grein fyrir því að í Kaliforníu þá fer
sólin ekkert í frí á bak við ský... úpps!!)  Finnur við það að deyja úr hita,
en fékk að lokum þjóninn til að færa okkur. :)

Finnur fékk sér þennan fína humar frá Maine sem reyndist vera einn besti
humar sem við höfðum bragðað í lengi tíma.  Með humrinum fylgdi einnig
steikarbiti eins og virðist vera staðallinn í Kaliforníulandi.  Ég fékk mér
sverðfisk - sem var bara fínn - fyrir utan hrísgrjónin sem fylgdu með... jökk!

Finnur lagður til atlögu við humarinn...
hann var með hnetubrjót sem til aðstoðar. :)

Svona leit staðurinn út - bara nokkuð snyrtilegur - en ekki mikið af fólki
enda búið að loka sædýrasafninu og flestir farnir af svæðinu.

Fljótlega var humarinn svo gott sem kominn í frumeindir sínar
(æji, þið vitið hvað ég á við) og við kvöddum Clawdaddy's
södd og sæl.

Við nánari athugun kom í ljós að það virðist vera óvenju mikil gallerístemming
í Monterey miðað við það sem við höfum hingað til séð í Bandaríkjunum.
Þarna inni fundum við möppur með Yosemite myndum... og við erum alveg á því
að það verði rosaleg vonbrigði að fara þangað loksins eftir að maður er búinn að
sjá allar þessar rosaflottu myndir... oh, well.. það kemur í ljós!

Það var einnig slatti af súkkulaðibúðum (Finnur reyndi að koma veg fyrir að
ég færi inn - en það bara tókst ekki!!).  Við fundum meðal annars þessa
frábæru súkkulaði-diskettu í fullri stærð... :)

Svo ekki sé minnst á stóra frænda - hann súkkulaði-geisladisk!
Við erum svo sannarlega í nágranni við Sílikondal! :)

Til að trompa þetta búðarrölt okkar allt saman þá duttum við líka inn
í "innflutningsbúð" með svona afrísku trédóti og þvíumlíku.

En það voru líka venjuleg hús þarna.  Hér er eitt lítið og sætt.

Hvað ætli margir þúsund eða milljón túristar eigi mynd af
þessum gosbrunni?  Ja, núna eigum við eina líka! :)

Flótlega eftir þetta náðum við í bílinn og rúntuðum smá meira um Monterey áður en við lögðum af stað heim á leið.  Finnur hafði gerst svo djarfur að fá sér bjór með matnum sem þýddi að ég fékk að keyra heim - júhú! :)  Alltaf gaman að keyra Trölla!  hehe  Finnur náði síðan í hjartað úr buxunum þegar við komum heim... ;)