Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Vinnuverður
Laugardagur 11. ágúst (FBÞ)  - [Sett á vefinn mánudaginn 13. ágúst]

Á laugardeginum var haldið upp á brúðkaup Úlfars og Lottu með hádegisverði hjá Radhiku, vinnufélaga Finns, en hún er Product Manager hjá GreenBorder. Radhika er búin að búa í Palo Alto í fimm ár með manninum sínum og einum ketti og er hún nýjasti meðlimur GreenBorder fjölskyldunnar, byrjaði fyrir nokkrum vikum. Hver og einn kom með mat með sér sem átti helst að samræmast þemanu sem var suður-indverskur hádegisverður (enda langflestir gestirnir Indverjar) - við Hrefna mættum með kjúkling. Indversk matargerðarlist skiptist einmitt í tvær greinar, norður-indverska annars vegar og suður-indverska hins vegar. Sú matargerðalist sem flestir Íslendingar telja indverska myndi flokkast undir norður-indverska og einkennist af Nan brauði og þyngri máltíðum sem oft eru byggðir á kjötréttum. Suður-indverski stíllinn er meira í léttum grænmetisréttum en það var einmitt stíllinn sem fylgt var í matarboðinu.

Þess má til gamans geta að Finnur er eina kjötætan í sjö manna fyrirtæki þannig að þegar haldnir eru mánudagsfundir (með hádegisverði) þarf að gera sérstaklega ráð fyrir "kjötætunni" í hópnum, svona svipað og með grænmetisæturnar heima á Íslandi... :)

Fyrst var hafist handa við að flytja borðstofuborðið út í bakgarð...

Lotta, Úlfar, Hrefna og Radhika

Ashit (já hann heitir það, er maðurinn hennar Radhiku), Finnur, Anurag,
Vlad, Tatjana, Dominique, Lotta, Hrefna, Asit og Úlfar.

Boðið var upp á Samosa í forrétt, sem eru eins konar spicy innbakaðar
vorrúllur (nema hvað eins og þríhyrningar í laginu) og
sjá má á miðri mynd hér að ofan (við hliðina á Hrefnu).

Í aðalrétt var svo Sambar (sem er eins og köld græn baunasúpa), Koshimbir/Raita (sem er eins og jógúrt dressing) og að sjálfsögðu hrísgrjón og salat.
Asit kom einnig með eina krukku af suður-indversku Vadu Mango Pickle sem var alveg rótsterkt enda inniheldur það mulinn chili-pipar...

Í tilefni af brúðkaupinu var skálað í kampavíni og Úlfar fékk heiðurinn af því
að opna fyrstu flöskuna.

Svo var hafist handa við að opna gjafir...

Þau fengu m.a. indverska mynd frá Sunil og frú og búsáhöld (frá okkur Hrefnu)
af brúðkaupslistanum sem við fundum í tölvunni í Crate & Barrel... :)

Finnur, Anurag og Vlad.  Takið eftir fuglamyndunum á veggnum.

Sunil og konan hans, Sangeeta, komu seint en þau áttu sem betur fer
að sjá um eftirréttinn, Gulab Jamun, sem eru eins konar ástarpungar
í sírópi/hunangi. Vinstra megin við Sunil er Asit og hægra megin Ahsit.

Finnur og Anurag í bakgrunni og eftirrétturinn Gulab Jamun í forgrunni.

Úlfar og Lotta (hér til vinstri) fóru í brúðkaupsferð til Ítalíu í litla sjávar-
þorpið þar sem Il Postino var tekin upp.

Dominique, dóttir Vlad, vildi helst vera afsíðis í garðskálanum

Greipaldintréð sem vex í garðinum hjá Radhiku.

Heimiliskötturinn lét lítið fyrir sér fara, var reyndar afskaplega kumpánalegur
við Finn þegar hann mætti en það kom síðar í ljós að það var vegna þess að hann
fann lyktina af kjúklinga-eldamennskunni - hann fær víst of lítið af kjöti
að borða (að eigin mati), svona fyrir utan hefðbundinn kattamat...

Þegar leið á daginn færðu allir sig inn í hús og spiluðu leik sem heitir Mafia, þar sem keppendum er skipt upp í mafíu annars vegar (um 1/4) og þorpsbúa hins vegar (rest). Mafían fær að drepa einn þorpsbúa í hverri umferð (meðan þorpsbúar eru með lokuð augu) og þegar því er lokið þurfa þorpsbúarnir að finna út hverjir tilheyra mafíunni og hverjir eru bara venjulegir skattgreiðendur... Einn gestanna leikur síðan hlutverki stjórnanda leiksins og einn þorpsbúinn er höfðingi þorpsins (án þess að aðrir viti) og má hann spyrja leikstjórnanda um einn leikanda hvort hann tilheyri mafíunni eða ekki (með því að benda á meðan aðrir eru með lokuð augun).

Það lið sem lifir af fjöldamorðin í þorpinu vinnur leikinn...

Um fjögur leytið vorum við komin heim - örþreytt eftir strembna vinnuviku - og restin af deginum fór í bókarlestur og sjónvarpsgláp eða tölvuna.