Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Hafnarbolti
Þriðjudagur 31. júlí (HMG)  - [Sett á vefinn sunnudaginn 5. ágúst]

Það var búið að plana það heillengi að fara á hafnarboltaleik - enda getur maður ekki verið þekktur fyrir það að búa í Bandaríkjunum og hafa ekki farið á hafnarboltaleik!!  (hmmm... hverjir eru búnir að búa við hliðina á San Francisco í tæplega ár án þess að kíkja almennilega á borgina??!! ;)
Todd sá um að kaupa miðana - fyrir valinu varð leikur á milli "The San Francisco Giants" og "The Pittsburg Pirates".  Eins og allt hitt sniðuga fólkið þá ákváðum við að taka lestina (þ.e. CalTrain) að PacBell Park þar sem það mun víst vera martröð að vera þar á bíl.  Meiriparturinn af hópnum tók lestina frá Palo Alto en við Finnur tókum hana frá San Antonio (því þar eigum við heima!) - en það vildi svo til að Palo Alto hópurinn komst um borð í svo til tóma aukalest á meðan Finnur og ég þurftum að hírast í fullri "aðallest".  Sem betur fer vorum við með sæti á leiðinni - enda tók ferðin rúma klukkustund.  

Hrefna étur ferskju á San Antonio lestarstöðinni

Komin á leiðarenda - Pac Bell Park.  
Þess má geta að Pac Bell=Pacific Bell er símafyrirtækið á svæðinu...
Nú þurftum við að finna restina af "genginu"...

Eins og sönnum könum sæmir þá var sölubás fyrir framan völlinn...
Við létum ekki freistast í þetta sinn... kannski seinna?! :)

Það tók ekk langan tíma að finna "gengið"... þau biðu eftir okkur á annarri hæðinni!
Svo kom að því að fara inn um hliðin.  Eitthvað voru miðarnir að stíða okkur...
þeir bara vildu ekki fara inn í rafræna miðalesarann.  En analog miðalesarinn
(heldri maður) hleypti okkur í gegn - mikið vorum við glöð! :)

Þetta er engin smá bygging... hún er amk á sjö hæðum!
Joe, Janine, Tom, Todd, John og Kerri biðu okkar...

Svo tók við labbið upp alla "rampana" því við vorum með miða alveg
eins hátt uppi og hægt var - því þar er að sjálfsögðu ódýrast að sitja -
og við erum nú bara fátækir námsmenn-og meyjar!!

Á leiðinni var þetta fína pylsuauglýsingaskilti!
Pylsurnar sjálfar reyndust vera mjög góðar við nánari athugun! :) :)

Á leiðinni upp var svo þetta fína útsýni yfir Bay Bridge sem liggur yfir í Oakland.

Þegar við komumst loksins upp í hæstu hæðir þá var verið að syngja
þjóðsöng Bandaríkjanna.  Til þess hafði verið fengin ónefnd söngspíra
frá Oakland sem gerði honum nú bara ágæt skil!  

Hér eru Finnur, Joe, Janine og Tom að klífa stigann upp í sætin okkar.
Eins gott að skrika ekki fótur!!

Hafnarbolti er í eðli sínu líkur veiðum - það gerist ekki nokkur skapaður hlutur
í lengri tíma - en síðan kemur fjörugur sprettur - og svo gerist ekki skapaður
hlutur í lengri tíma.  En það er alltaf hægt að láta eins og fífl í stúkunni!... ;)

Finnur og Hrefna kappklædd - enda alltaf skítakuldi í San Francisco!!

Ójá... við vorum víst á hafnarboltaleik!  
Hér er völlurinn... það eru 9 leikmenn í hvoru liði...

Nei... það er miklu skemmtilegra að láta taka myndir af okkur! :)

Joe (sem reynir hér að fela sig bak við Tom)
er stundum svoldið skrítinn... ;)

Já....  og Finnur er með "ég þekki þetta fólk ekki" svipinn... ;)

Með í för voru John og Kerri - samanlímd að venju... :)

Merkilegt hvað þau öll eru róleg miðað við fjallið sem
stendur yfir þeim!! ;)

Það má ekki gleyma Janine... sem hrópaði ókvæðisorð að leikmönnunum
sem stóðu sig ekki sem skyldi... eða sagðist vera kærasta þeirra sem
hétu flottum nöfnum!! ;)

Merkilegasta fyrirbærið af öllum á vellinum er án efa stigataflan
en án hennar væri ekki fræðilegur möguleiki að fylgjast með því sem er að gerast!!  
Hér er staðan 7-5 fyrir Giants.  Pirates "eru að gera" og það er búið að slá tvo þeirra "út".
Sá sem er að slá ("batterinn") er búinn að "stræka" einu sinni og fá á sig einn "bolta".
 (Hann má "stræka" þrisvar áður en hann er "úti".  Ef hann fær á sig 4 "bolta" þá kemst
hann sjálfkrafa í 1. höfn).  Þegar það er búið að slá þrjá "út" þá er komið að hinu liðinu að gera.

Leikurinn var frekar óspennandi framan af en á síðustu stundu náðu Pirates
að jafna og þá þurfti að leika lengur en venjulega.  Yfirleitt eru leiknar 9 umferðir
(kallaðar "innings") en í þetta skipti þurfti 11 umferðir til að skera úr um sigurvegarann.
Þar sem við vildum ná lestinni sem færi 15 mínútur eftir leikslok færðum við
okkur nær leikvellinum - enda tók nokkara mínútur bara að skokka niður allar hæðirnar!
Hér sést Pirates kastarinn kasta boltanum...

...og Giants "batterinn" hitti boltann!!  Hér sést hann hlaupa af stað á meðan
einn í Pirates liðinu kastar sér á jörðina til að reyna að ná boltanum!!

Þetta varð að lokum til þess að The Giants skoruðu stig sem þýddi að þeir voru sigurvegarar kvöldins!!  Við hlupum við það í átt að lestarstöðinni og náðum sem betur fer hraðlestinni heim því það var næstum komið miðnætti og vinnudagur morguninn eftir.  Þegar í lestina kom var þar mökkur af fólki sem hafði farið á lestarstöðina eftir 7. eða 8. umferð þegar Giants voru ennþá með tveggja stiga forystu - og var því búið að sitja í lestinni í næstum klukkustund!!  Við gengum glottandi fram hjá og fundum okkur sæti aftast í lestinni...

Eftir á að hyggja þá er hafnarbolti frekar dapur leikur - nema maður sé harður áhugamaður sem skrifar allt sem gerist niður og safnar furðulegustu "statistík"...  Fyrir okkur hin þá getur maður alveg eins horft á sjónvarpið - eða lesið bók!  Við mælum sem sagt ekkert sérstaklega með hafnarbolta - kýló er miklu skemmtilegra!!  ;)