Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Raging Waters
Sunnudagur 29. júlí (HMG)  - [Sett á vefinn sunnudaginn 5. ágúst]

Í tilefni af því að Finnur átti afmæli sunnudaginn 29. júlí og vegna þess að Logi var á að hverfa á brott til Íslands þann 31. júlí, þá ákváðum við að gera okkur glaðan dag og skreppa í vatnsrennibrautagarðinn Raging Waters sem er í San Jose (um 30 mínútna akstursfjarlægð).  Við lögðum af stað "eldsnemma" á sunnudagsmorgni - við vorum komin út úr húsi klukkan 10 - og þá fórum við að sækja Loga á Stanford kampusinn.  Við vorum svo mætt á svæðið um 11 leytið eftir að hafa komið við í hinum ýmsu hraðbönkum, þar af einum sem virkaði ekki!  

Logi á bílastæðinu.  Við vorum nógu snemma á ferðinni til að fá gott bílastæði!
Í baksýn er svo "Dettifoss" til hægri en "Serpentine" til vinstri.

Inngangurinn - ekkert voða grand.  Aðgangsseyrir var
$22 því að Finnur prentaði út $3 aflsláttarmiða á netinu! :)

Finnur, Hrefna og Logi í fullum klæðum áður en lagt var í herlegheitin.

Logi leigði skáp til að geyma verðmæti í, við smurðum okkur með sólaráburði númer 8, handklæðin voru sett á autt borð og því næst var tekið til við að tjútta í brautunum!  Það kom fljótlega í ljós að við vorum LANG-hvítasta fólkið á svæðinu - sem var svo sem ágætt því það var vonlaust að týnast!!  :)  Eftir örugglega 2-3 klukkustunda brautatjútt var haldið aftur í höfuðstöðvar og við fengum okkur "pretzel" og að eitthvað drekka.  Þá var orðið svo heitt að það var sárt að ganga á gangstéttinni því hún var brennandi heit - og því fór ég í fötin og skóna og náði í myndavélina og rak drengina til að taka loka-rennsl fyrir myndakubbinn.

Logi og Finnur bíða eftir að ég snúi til baka með myndavélina...
algjör snilld að vera partur af svona endurskinsmerkjahóp! :)

Hér er fyrsta brautin sem við prófuðum - Serpentine.  Maður fer upp
stigann með grænan kút (dekk) og svo fara þrír niður í einu - hver eftir
sinni braut.  Ágætis trikk til að fá mann til að fara þrisvar upp stigann
(og bíða þrisvar í biðröð... ;)

Hér er svo besta brautin - "Dettifoss" (eða eitthvað!).
Það er hann Finnur sem er að koma niður vinstri brautina...
og eins gott fyrir björgunarvestklæddu konuna að forða sér!

Splassh!  Og Finnur lentur!!

Skömmu síðar kom Logi niður (ég náði því miður ekki góðri
mynd af honum á leiðinni niður... það sást bara í iljarnar!!)

YEAH!!  ;)

Eftir þetta fóru Logi og Finnur að láta sig þorna/fara í þurr föt á meðan ég
rölti um garðinn og tók myndir.  Hér er "hispanískt" band að spila í boði
útvarpsstöðvarinnar Romantica (á FM 100.3!).  Okkur virtist sem að
um 75% gesta væru spænskumælandi...

Hér er "hinn parturinn" af garðinum - öldupollur til vinstri, barrakúdubrautin
í miðjunni og (barna)hauskúpukastali til hægri.

Öldupollurinn í fullum gangi.  Fínt fyrir litla krakka og fólk á kútum.
Það var skondið að fylgjast með þegar öldurnar hættu ... því þá fóru allir upp úr!

Því miður telst víst "flott" meðal hispanískra að eiga
börn í góðum holdum...

Hauskúpukastalinn - úúúhhh...

Skiltið fyrir "barrakúduna".  Bláa rennan hægra megin
er færiband fyrir uppblásna þriggja-manna gúmmíbáta
sem maður fer niður brautina í...

Þetta er tekið í stiganum upp í "barrakúduna" og sýnir svæðið meira í
heild sinni.  Rennibrautagarðurinn er víst bara partur af stærra útivistarsvæði.
Þarna lengra var fólk í "pikknik" og eitthvað var um hjólabáta á vatninu :)

Svo hélt ég til baka og fann þá hvar fullorðna fólkið hélt sig - í skugganum
að sjálfsögðu!! :)

Þegar ég fann strákana aftur þá voru þeir komnir í fötin og þá var lítið
annað að gera en að hverfa heim á leið (með smá stoppi á In&Out burger... :)

Áður en maður fór þá varð reyndar að geta "sponsoranna"...

Og hér er svo kort af garðinum! :)

Eftir smá stopp á In&Out burger þá skutluðum við Loga heim og óskuðum honum góðrar heimferðar!  
Síðar um daginn fór ég í vikulega innkaupaferð í Safeway til að kaupa í matinn og kippti með rósum handa eiginmanninum - hann á nú bara afmæli einu sinni á ári!! :)

Finnur afmælisbarn! :)