Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Nýjar tölvur
Miðvikudagur 25. júlí (HMG) - [Sett á vefinn fimmtudaginn 26. júlí]
Kerri, ég og skrifstofufélagi okkar, hann Chin San, erum undanfarið búin að vera að vinna á fjögurra eða fimm ára gömlum Sun Ultra 1 vélum í "vinnunni" (þ.e. í skólanum - en við fáum borgað fyrir að vera þar þannig að þetta er víst vinnan okkar!) og því skal engan undra að við fengum leyfi til að kaupa nýjar vélar!! Fyrir valinu urðu vélar frá MicronPC með 1.4GHz AMD Athlon örgjörva, 256MB minni, 40GB diskum og ýmsu öðru skemmtilegu. Mín tölva kom fyrst (í síðustu viku) en í dag kom tölvan hennar Kerriar - og sú varð glöð!! :)
Dagurinn byrjaði reyndar á því að ég þurfti að aflæsa hjólinu mínu...
... en það er kirfilega merkt fyrir þá daga sem ég nota lestina.
Það er nefnilega hjólavagn í lestinni, og fólk reynir að raða
hjólunum eftir því hvert fólk er að fara. Voða sneddí! :)
Svo þarf að fara með hjólið niður stigann. Yfirleitt er hjólið geymt úti á svölunum
en ég stalst til að geyma það fram á gangi í smá tíma. Svo kom "leigustjórinn"
og sagði mér að það væri bannað út af brunareglum... bömmer!! :(
Þennan morgun hjólaði ég í vinnuna/skólann en það tekur mig
30 mínútur sem er í fínu lagi því þetta er fremur "slétt" leið.
Hér er hjólið tryggilega læst á hjóla"stæðinu" :)
Curtis var mættur, aldrei þessu vant, en hann fer að vinna fyrir JPL
(Jet Propulsion Laboratory) í LA eftir tæplega mánuð. Ætli við sjáum hann
nokkuð eftir það?
Svo var komið að stóru stundinni! Tölvan kom!! Kerri glöð!!
Til að gera daginn ennþá betri þá hafði einn prófessorinn
skilið eftir "Turkish Delight" og "Cotton Candy" frammi.
Hér er Kerri að borða Turkish Delight... nammi namm! :)
Hér er nýja tölvan mín... eða öllu heldur skjárinn og lyklaborðiði.
Tölvan býr undir borði í þar tilgerðum "turn"-kassa... :)
Svo var komið að mér að borða "bómullar-nammið".
Þetta var voða gott en mjög erfitt í meðhöndlun!
Þarna var ég nefnilega búin að komast að því að það er slæm hugmynd
að ganga og reyna að éta einn svona köggul í einu... maður skilur nefnilega
eftir sig hvíta slóð á teppinu... ;)
Hér er sóðavaldurinn...
Ó, nei... Hrefna er farin að froðufella!!! ;)
Eftir allt nammiátið þá vorum við með nógu mikla
krafta í kögglunum til að færa gömlu tölvuna hennar Kerriar.
Púff! Þvílíkur hlunkaskjár!!
Eins og sjá má þá elskar Kerri gömlu tölvuna sína af
öllu hjarta... not!! ;)
Og hér er svona nýi gripurinn kominn!! Sem stendur erum við að keyra
Windows 2000 Pro á nýju leikföngunum okkar... kannski að við herðum
upp hugann og setjum upp Linux dual-boot við tækifæri... við sjáum til!! ;)
Það besta er síðan að núna er ég loksins farin að geta "talað" við vini og vandamenn á MSN Messenger í vinnunni.. júhú!!! :)