Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Plöntur
Fimmtudagur 19. júlí (HMG) - [Sett á vefinn fimmtudaginn 26. júlí]
Hún Elsa var svo indæl að gefa okkur eina tómatplöntu og eina papríkuplöntu í byrjun sumars því "hún var að drukkna í þeim"! :) Þegar við fluttum tókum við að sjálfsögðu plönturnar með og nú lifa þær góðu lífi á svölunum hjá okkur.
Papríkuplantan með tveimur grænum paprikum! :)
Eini gallinn er að ég veit ekki hvenær þær eru tilbúnar!!! Hjálp!!!
Hér er svo tómatplantan. Við erum nýbúin að kaupa snærisspotta
og króka og binda hana upp, en þegar þessi mynd var tekin þá
lá hún ennþá uppvið og ofan á svalahandriðinu... ;)
Hún er hins vegar farin að gefa af sér þessa lika fínu
"cherry"-tómata sem ég ét um leið og þeir eru tilbúnir!! :)
Um daginn var mér síðan sagt hvernig maður tekur afleggjara af tómatplöntum og síðan þá hafa tveir afleggjarar ratað í blómapotta. Það koma myndir af þeirri fjölskyldu síðar!! :)