Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Sófarnir koma
Miðvikudagur 18. júlí (HMG) - [Sett á vefinn fimmtudaginn 26. júlí]

Laugardaginn 14. júlí lögðum við í annað skipti land undir fót og fórum að leita að sófum í íbúðina okkar. Við vorum fyrirfram búin að ákveða að kaupa nýjan sófa frekar en notaðan og helst svefnsófa. Í fyrri sófaferð okkar hafði okkur litist best á sófa í Levitz húsgagnahöllinni í Redwood City en svo hafði ég séð einn sófa í Ikea sem mér leist mjög vel á. Hvað um það, við lögðum af stað vopnuð símaskrá og "gulu síðunum" og keyrðum vítt og breitt um Mountain View, Palo Alto og Redwood City og skoðuðum fjöldan allan af sófum. Að sjálfsögðu enduðum við í Levitz húsgagnahöllinni þar sem draumasófi Finns beið og vildi láta kaupa sig. Við spurðum afgreiðslulmanninn hvað það tæki langan tíma að fá þriggja manna sófann sem svefnsófa og hann sagði að það tæki líklega 4-6 vikur... Það fannst okkur vera allt of langur tími - og í staðinn fyrir að kaupa svefnsófa þá ákváðum við bara að kaupa einn þriggja manna sófa og annan tveggja manna sófa!! (Þess má geta að ég er búin að vera á peningamóral síðan... ahemm....)
Hvað um það - við pöntuðum að fá sófann sendann heim næsta miðvikudag - og það stóðst! Klukkan 14:30 stundvíslega (þeir ætluðum að koma á milli 14 og 18) var bankað á dyrnar og lítill mexíkanskur naggur spurði mig "Levitz?". Ég kinkaði kolli og á fimm mínútum voru báðir sófarnir komnir inn í stofu og allar pakkningarnar horfnar ásamt mönnunum þremur sem sáu um að koma með sófana! Þetta kallar maður þjónustu! :)
Gæjarnir byrjuðu á að koma með "loveseat"-ið, þ.e. tveggja manna sófann...
...sem var snögglega strípaður af öllum umbúðum...
... og síðan komið fyrir við gluggann!
Síðan var komið að þriggja manna sófanum sem fékk svipaða meðferð og hinn.
Og hér eru litlu krúttin okkar! Efnið er víst einhvers konar apaskinn
og á því er 7 ára ábyrgð - sem er gott fyrir sálina... ;)
Áður en varði voru Deirdre og Todd mætt - því nú skyldi kveðja Deirdre
sem var á leiðinni til Englands að útskrifast frá Cambridge með
master í EE, og svo til Írlands að heimsækja fjölskylduna.
Við átum pizzu og spiluðum spil áður en...
... Deirdre þurfti að fara heim að pakka og snemma að sofa því flugið hennar
var eldsnemma daginn eftir eins og tíðkast víst með Evrópuflugið.
Eftir sátum við Todd og spjölluðum og þegar Finnur kom heim skruppum við út á vídeóleigu og leigðum Finding Forrester með Sean Connery og einhverju svörtum strák. Ágætis mynd - svona svertingjaútgáfa af Good Will Hunting... :)
Nú er bara að bíða eftir að Ikea fái sófaborðið og þá fer þetta allt að smella saman!