Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Heimferð
Laugardagur 7. júlí (HMG)  - [Sett á vefinn fimmtudaginn 19. júlí]
Við gengum til baka frá Bumpass Hell og héldum svo áfram sem leið lá á veginum sem liggur í gegnum garðinn frá suðri til norðurs.

Fallegt útsýni

Hrefna með Lassen Peak í baksýn

Hér er hæsti punktur vegarins - 2594 metrar yfir sjávarmáli -
ef marka má kortið sem garðurinn gefur út.

Og beint fyrir neðan skiltið var þessi líka fallega snjóbreiða fyrir fólk
eins og mig sem hefur ekki séð snjó í að verða ár!!  :)

Svo kíktum við á Summit Lake og fengum annan túrista til að
taka af okkur mynd - synd og skömm með skuggann.

Hér er skilti sem skýrir frá "The Devastated Area" sem
varð til þegar risastórt leðjuflóð (eða hvað það nú heitir)
féll úr Lassen Peak og lagði svæðið alla leið frá tindinum
að skiltinu í rúst.

Svo vorum við komin í gegnum garðinn.  Hann er nokkuð fljót-afgreiddur
á bíl en það er líka hægt að tjalda og ganga út um hvippinn og hvappinn.
Það skal þó hafa í huga að hér munu víst vera birnir á vappi...

Eitt stykki mynd af skógi og steinum.  Ég skil ekki ennþá
hvernig öll þessi risatré fara af að lifa þarna í þessum jarðvegi!

Og áður en við vissum af vorum við komin aftur í siðmenninguna, nánar tiltekið
til Redding.  Þar ákváðum við að stoppa til að fá okkur kvöldmat áður en við
keyrðum aftur niðureftir og heim.

Finnur á Outback Steakhouse þar sem maturinn var bara fínn
og þjónustan alveg eðal! :)

Hrefna á Outback Steakhouse sýnir afleiðingar þess að vera með
toppinn í tagli heilan dag! ;)

Það var svo ég (Hrefna) sem keyrði niður Kaliforníu alla leiðina heim og hafði gaman af.  Alltaf stuð að fá að nota "krús kontrólið" (Cruise Control) og "krúsa" á 130 km hraða á klukkustund!  Mæli með því! :)