Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Bumpass Hell
Laugardagur 7. júlí (HMG)  - [Sett á vefinn fimmtudaginn 19. júlí]
Og loksins vorum við komin að Bumpass Hell!  Brennisteinslyktin var allsráðandi og minnti svo mikið á Ísland að maður velti fyrir sér hvað öll þessi tré væru eiginlega að gera þarna!! :)

Hægt og rólega nálguðumst við háhitasvæðið...

og rákumst á alls konar fallega liti á leiðinni.  
Við vorum greinilega á heimaslóðum! :)

Hrefna uppi á útsýnishól - sérhönnuðum fyrir myndatökur!...
Nei, ég segi bara svona! ;)

Hér er ágætis mynd af blá-gráa læknum - rosaflottur!

Finnur kíkir á litina og lækinn

Furðulegur drullupollur - og bannað að snerta!

Svo var líka bullu-drullupollur og ofur-grænt "vatn"...

Nei sko!!  Mynd af okkur BÁÐUM!!!  Við þökkum túristanum kærlega fyrir :)

Séð upp eftir hlíðinni sem við komum niður

Er himnaríki ekki svona á litinn?!?!

"Unlawful to go beyond this point"-skilti og uppreisnarunglingurinn Finnur! ;)

Hvað kaupir maður svona grænan heitan pott?... hmmm...

Og þar með var stígurinn á enda.  Við veltum fyrir okkur hvort við ættum
að stökkva út í, en hættum við að betur íhuguðu máli... ;)

Séð aftur yfir hlíðna sem við komum niður frá endapunkti stígarins.

Við gengum svo til baka, sem reyndist merkilega erfitt því nú var stígurinn upp á við miklu brattari og við vorum í um 2500 metra hæð, sem er víst ofar en  toppur Hvannadalshnjúks sem er 2119 metra hár.  Eftir smá más og blás var Bumpass Hell að baki og nú lá leiðin út úr garðinum og heim á leið.