Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Leiðin að Bumpass Hell
Laugardagur 7. júlí (HMG) - [Sett á vefinn fimmtudaginn 19. júlí]
Skömmu eftir að við komum inn í Lassen Volcanic National Park komum við að Bumpass Hell bílastæðinu. Maður þarf nefnilega að leggja bílnum sínum og rölta smá spotta til að komast að Bumpass Hell.
Byrjunin á Bumpass Hell göngutúrnum. Finnur les sér til um leiðina.
Gönguleiðin er mjög auðveld, enda mættum við fullt af fjölskyldum með
bæði unga og aldna á leiðinni.
Séð yfir dalinn og ána fyrir neðan stíginn
Það er alveg merkilegt hvað barrtréin eru nægjusöm með jarðveg!
Þessi blómabreiða minnti á Ísland... nema hvað að yfir henni suðaði hrúga af geitungum,
en það var allt morandi af þeim og býflugum á svæðinu. Allir voru þeir þó til friðs. :)
Hér sést göngustígurinn yfir hæðarhrygginn, sléttur og yfirleitt breiður vegur.
Svo vorum við komin á efsta punkt leiðarinnar og nú lá leiðin niður á við í átt
að sjálfu Bumpass Hell svæðinu eins og viðvörunarskiltið gefur til kynna.
Sjálft Bumpass Hell! "Svörtu strikin" í fjarksa eru göngubrýr.
Ahhh... brennisteinslykt!! :)