Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Lassen
Laugardagur 7. júlí (HMG)  - [Sett á vefinn fimmtudaginn 19. júlí]
Eftir að hafa verið bíllaus í allan vetur þá vorum við búin að lofa okkur að kíkja nú eitthvað út fyrir Bay Area áður en sumrinu lyki - en svo þurftum við að flytja og allt skipulag fór í algjört hakk.  Við ákváðum því bara að taka þetta með trompi (eins og Íslendinga er siður) og "skreppa" norður í Lassen Volcanic National Park til að finna lyktina af kalifornískum heitum hverum og bara gera eitthvað öðruvísi.  Upphaflega átti þetta að vera tveggja daga túr, en Finnur þurfti að vinna á sunnudeginum þannig að við bara keyrðum upp eftir og svo niður eftir á einum degi - þrátt fyrir að hvor leið tæki um fjóran og hálfan tíma (á 130 km/klst)...

Við náðum að leggja af stað klukkan 10 um morguninn sem er líklega met fyrir okkur tvö og keyrðum upp og framhjá San Francisco í átt að Vallejo og Sacramento.  Þar rákumst við á brúna yfir Carquinez Strait sem var bara nokkuð flott.

Brýrnar yfir Carquinez Strait við Vallejo - ein fyrir hvora akstursátt

Og eins og venjan er þá þurftum við að borga $2 fyrir að
nota brúna en alltaf bara í aðra áttina.

Eitthvað vorum við með lítið bensín þannig að rétt áður en við komum að highway 505 þá stoppuðum við í Vacaville - aðallega út af nafninu (Wacoville!)...  Þar tókum við bensín og fórum í fyrsta skipti inn á Wendy's í Bandaríkjunum og það gerum við að öllum líkindum ekki aftur!  Borgararnir voru sem sagt ekkert til að hrópa húrra fyrir og gosið var ódrykkjarhæft vegna óhæfilegs klórmagns! :(

Finnur á Wendy´s.  Maður pantar og konan segir allt sem maður í pantar í
hátalarakerfi þannig að það glymur yfir allt... "já, ég ætla að fá risaskammt af
frönskum, risaskammt af kóki, risaskammt af olíubornum lauki, tvo risa ..."

Eftir að hafa keyrt á 505 í smá stund komum við að Interstate 5 ("Fimmunni")
sem er með tvær akreinar í hvora átt, lítið af beygjum og 70 mílna hámarkshraða.
Þar brunuðum við norður á 130 km/klst... og áður en við vissum af...

... þá vorum við komin í Lassen Volcanic National Park!
Hér er Finnur að sóla sig í skjóli trjánna, en það var smá gola þennan dag.
Þess má geta að garðurinn er í um 2km hæð yfir sjávarmáli...

Hér sáum við fyrstu merki um jarðhita... ohh... en fallegir litir! :)

Hér er Finnur með "Trölla" sem stóð sig eins og hetja! :)
Mount Diller í baksýn (held ég).

Brokeoff Mountain - 2815m hátt

Hrefna kíkir á meiri fjöll

Og svo aðalgæinn sjálfur - Lassen Peak sem gaus á milli 1914-1921

Svo var komið að aðal-aðdráttaraflinu, Bumpass Hell.  Þar sem við tókum svo margar myndir á leiðinni þangað og þar þá eru þær á næstu síðu. :)