Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Molly McGee
Föstudagur 6. júlí (HMG) - [Sett á vefinn miðvikudaginn 18. júlí]
Eins og "alþjóð ætti að vera kunnugt" þá erum við flutt af kampus - og þar af leiðandi er algjörlega út í hött að halda föstudagsfundina á CoHo, kaffihúsinu á kampus. Næsti föstudagsstaður er án efa miðbær Mountain View - og það vill svo til að þar má finna tvo ágæta írska bari. Þegar Todd átti afmæli fórum við á St. Stephens Green, en þann 6. júlí var farið á hinn barinn (hann er tveimur dyrum neðar en St. Stephens Green) sem heitir Molly McGee. Með í för vorum við Finnur, Deirdre, Kerri, Joe, Todd og tveir nýir herramenn sem Kerri kynntist í frisbí þann 4. júlí ... þeir Luiz og John. Þess má geta að John telst núna vera nýjasti kærasti Kerriar...
Joe og Todd... Ha?! Erum við að drekka bjór?! Það getur ekki verið!!
Hrefna og Deirdre á góðri stundu. Ég er ekki frá því að hárið mitt sé orðið svolítið
ljóst af öllum þessum hjólreiðatúrum til og frá kampus... :) Er það ekki bara betra?! ;)
Kerri og John ásamt nefinu á Finni.
Todd og Luiz ásamt smá magni af bjór... uhumm...
Ég og Deirdre fengum að setja tígó í Joe... hann var svo glaður!! :)
Luiz fékk eiginhandaráritun hjá honum þessum - hann er víst rithöfundur.
Rithöfundurinn og vinur hans sem lánaði okkur flesta stólana við borðið hans
því við vorum svo mörg. Þeir virtust vera fastagestir á staðnum...
Mér fannst þetta bara vera svo flott skilti að ég varð að smella af einni mynd.
Eftir föstudagsumræðuna fóru kampusbúar aftur á kampus og spiluðu spil fram á rauða nótt en við Finnur fórum heim því við vildum fara snemma að sofa. Daginn eftir ætluðum við nefnilega að "skreppa" norður eftir að kíkja á Lassen Volcanic National Park - meira um það á næstu síðu(m).