Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
4. júlí
Miðvikudagur 4. júlí (HMG) - [Sett á vefinn sunnudag 8. júlí]
Eins og allir vita, þá er þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna þann 4. júlí ár hvert og ólíkt öðrum frídögum þá er hann ekki færður á næsta mánudag eða föstudag eins og venjan er. Því var það svo að við fengum frídag í miðri viku sem er afar óvenjulegt. Aldrei þessu vant var skýjað allan þennan dag, sem var eiginlega bara betra því þá gat fólk verið úti við án þess að stikna.
Við ætluðum að eyða deginum með vinahópnum - en enginn nennti að taka af skarið og skipuleggja daginn - fyrir utan þá sem ætluðu upp til San Francisco að horfa á flugelda seinna um kvöldið. Við þáðum því með þökkum boð frá einum prófessornum á hæðinni "minni" um að mæta í "götugrillið" hjá þeim - en það mun víst vera algengt að kanar hópist saman í kringum grill af ýmsum stærðum og gerðum á þessum degi.
Prófessor Fraser-Smith og kona hans búa hérna rétt hjá okkur, en í töluvert fínna hverfi. Við vorum mætt um hálf fimm leytið og gengum að húsinu þeirra. Á því var miði um að mæta í bakgarðinn á húsi númer 23 og við létum ekki segja okkur það tvisvar...
Póstkassinn fyrir utan hús númer 23
Í bakgarðinum beið þetta fína hlaðborð sem við prufukeyrðum
einu sinni eða tvisvar... :)
Hér eru nokkrir af nágrönnunum - alveg frábærlega bandarískir sumir hverjir... ;)
Hér er síðan Prófessor Fraser-Smith með mexikanskan hatt...
sem er svolítið skondið miðað við að hann er frá Nýja-Sjálandi... ;)
Hér er Finnur með Doktor Niels, dana sem vinnur
með Soffíu á Stanford spítalanum við barnalækningar.
Svo var haldið út á götu (henni hafði verið lokað með lögregluskiltum)
og hver fjölskylda kom með eigið borð. Við hliðina á Finni er Julie, dóttir
prófessorsins, og hinum megin er Betsy, kona hans.
Það var slatti af borðum...
...og mikið grillað...
... og ennþá meira étið! :)
Við átum með bestu lyst og kunnum prófessornum og konu hans bestu
þakkir fyrir að bjóða okkur í alvöru bandaríska BBQ-veislu! :)
Niels, Betsy og Julie með bros á vör.
Áður en við vissum af var komið kvöld og tími til að halda heim á leið.
Fyrst varð þó að heilsa upp á bolabít eins nágrannans, og hjálpa til við að
fara með borðin og stólana inn. Í fjarska heyrðist svo í flugeldum af
hinum ýmsu flugeldasýningum - en það er bannað að skjóta upp sínum
eigin flugeldum vegna brunahættu.
Thank you Prof. Tony Fraser-Smith and Betsy!! :)
It was great! :)