Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b      |  Forsíða  |
|  Heimasíða Hrefnu  |   Dagbók#2 (blogg)  |  Aðsendar myndir  |   
|  2000  |  2001a - 2001b  |  2002a - 2002b  |  2003  |
Curtis kveður
Sunnudagur 1. júlí (HMG)  - [Sett á vefinn sunnudag 8. júlí]
Skrifstofufélagi minn, hann Curtis Chen (þessi sem á M&M krukkuna), útskrifaðist með doktorsgráðu þann 17. júní og er núna fráls til að fara og fá sér vinnu úti í alvöru heiminum.  Til að halda upp á að hann er ekki lengur á launaskrá Stanford, þá bauð hann nokkrum félögum í grill á kampus.

Hér er Curtis (til vinsti) og einhver vinur hans sem var duglegur að grilla

Grillið var hið myndarlegasta, enda mikið af svöngu fólki á svæðinu.

Kerri mætti að sjálfsögðu, enda líka skrifstofufélagi Curtisar, og fékk sér
bjór í öllum hitanum.

Svo átu allir á sig gat.  Hér eru EE stúlkur að sína átlistir sínar...

... og hinum megin við borðið voru strákarnir.

Ég þurfti reyndar að fara snemma þar sem Finnur þurfti að fá bílinn til að komast í vinnuna (á sunnudegi... sussubía!) - og ég eyddi því sem eftir lifði af deginum í að skrifa vefsíður... það er nefnilega svo hentugt að gera það á sunnudögum... eins og í dag! :)