Heimasíða Finns og Hrefnu - 2001b | Forsíða |
Saumó í SF
Laugardagur 30. júní (HMG) - [Sett á vefinn sunnudag 8. júlí]
Formlega séð er eiginlega komið að mér, Hrefnu, að halda saumaklúbb... en þar sem að við Finnur erum nýflutt og eigum engin húsgögn þá bauðst hún Lotta hans Úlfars til að halda saumaklúbbinn þennan mánuðinn. Takk fyrir það Lotta! :) :)
Lotta og Úlfar eiga sem sagt heima í einu flottasta hverfi San Francisco, Pacific Heights, sem sumir muna úr eftir samnefndri kvikmynd. Þau búa þar á 4. hæð (að ég held) með tveimur íslenskum köttum og eru búin að koma sér alveg rosalega vel fyrir þrátt fyrir að vera tiltölulega nýkomin til fyrirheitna landsins.
Saumaklúbbskonur í anddyrinu. Í hópnum voru að þessu sinni Laufey og
Ágústa dóttir hennar, en Örn (maður Laufeyjar) er að vinna við Stanford í sumar.
Húsin í Pacific Heigths eru rosalega falleg, og það sama á við um húsið sem
Lotta og Úlfar búa í. Mér tókst hins vegar bara að ná mynd af brunastiganum
framan á húsinu í þetta sinn. Það gengur bara betur næst!
Lotta og Úlfar búa á fjórðu hæð og hafa þetta fína opna svæði uppi á þaki.
Til hægri sést í Golden Gate brúna...
... og til vinstri sést yfir San Francisco.
Hér er önnur kisan þeirra, líklega strákurinn fyrst ég fékk að klappa honum! :)
Þessi mynd er tekin úr hringstiganum sem liggur upp á þak
- og áður en við færðum sófann.
Elsa og Auður (systir Snorra hennar Guðrúnar) í forgrunni.
Svo færðum við minni sófann svo við gætum spjallað betur saman.
Veitingarnar voru alveg eðal! :)
Guðrún og Lotta í eldhúsinu sem er stórt og fínt.
Svo ákvað Guðrún að sjá hvort kisi vildi rauðvín...
... undir vökulum augum Lottu :)
Lotta bar fram hvern "Gestgjafa"-réttinn á fætur öðrum og við átum
allar af bestu lyst! Hér fær Laufey sér á disk.
Og svo var spjallað og spjallað langt fram yfir miðnætti, en þá kom Úlfar
heim úr vinnunni, og við tókum til við að fara...
Hér er hópurinn á leiðinni niður stigana - en við vorum
svo heppnar að Soffía tók að sér að keyra mig, Berglindi,
Kristínu, Laufey, Ágústu og Elsu í átta manna trukknum hennar.
Svona erum við alltaf að hugsa um umhverfið! ;)
Eins og vera bar, þá tók ég nokkrar myndir af kisunum,
enda kisumanneskja mikil.... og svo var ég að taka þessar
myndir inn á tölvuna og það var eitthvað heitt í íbúðinni og
ég ýtti á einhvern vitlausan takka ... og niðurstaðan er hérna að neðan...
Þetta er það sem gerist þegar maður leikur sér aðeins of
mikið með Auto Levels í Photoshop!! ;)
Takk kærlega fyrir okkur Lotta! :)
Finnur var á meðan í partý-i hjá Loga ásamt Styrmi og var hann sóttur þangað að saumaklúbb loknum...
Því miður náðist ekki betri mynd en þetta af partýinu... :)
Partýið var með þemapartý að hætti James Bond og því höfðu
Logi og félagar klippt út skuggamyndir (?) af byssum,
kokteilglösum, og ýmsum öðrum James Bond fígúrum. Allir
veislugestir fengu Martini ("shaken, not stirred") og í einu horninu var
spilaborð fyrir 21 (e. blackjack) þar sem veislugestir voru hvattir til að tapa
sem mestum peningum til að borga fyrir veitingarnar... :)
Vel til fundið hjá Loga og félögum!